Sími : 5 800 900
Manneldi

Meðferð ávaxta og grænmetis

6.4.2004

Ljós, loft, hiti og vatn við geymslu og eldamennsku geta dregið úr bætiefnainnihaldi ávaxta og grænmetis. Til að draga úr tapi vítamína og steinefna er gott að hafa eftirfarandi í huga:

  • Þvoið gr.m./áv. áður en þið skerið smátt. Þannig tapast minna magn bætiefna út í vatnið.
  • Þvoið í stutta stutt en þó vandlega – ekki leggja í vatnsbað í langan tíma.
  • Nýtið eins mikið af gr.m./áv og hægt er – ekki skera af og henda nema því sem óætt er.
  • Ekki skera mjög smátt – þannig fer meira súrefni um matvælin og bætiefnin tapast fyrr.
  • Edik eða sítrónusafi draga úr C-vítamíntapi niðurskorins grænmetis og ávaxta.
  • Sjóðið grænmeti í gufu eða litlu vatni – notið grænmetissoðið líka til að endurheimta þau bætiefni sem fara út í vatnið.
  • Sjóðið í stutta stund og við eins lágan hita og hægt er – því lengur sem soðið er við háan hita þeim mun meira tapast af bætiefnunum.
  • Soðið grænmeti á ennþá að vera stökkt undir tönn – þannig bragðast það best og er hollast.
  • Haldið tilbúnum grænmetisréttum ekki heitum heldur kælið þá og setjið í lokuðu íláti í kæliskáp – bætiefnin brotna hægar niður við lægra hitastig.
  • Sjóðið grænmeti alltaf í lokuðum potti þannig að sem minnst af vökvanum gufi upp.


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica