Sími : 5 800 900
Manneldi

Þroski ávaxta og grænmetis

6.4.2004

Úrval og framboð ávaxta og grænmetis er breytilegt eftir árstíðum og almennt ræðst verðið einnig af framboðinu. Ferskleiki, bragð og þroski ávaxta og grænmetis er almennt í samræmi við árstíðabundinn uppskerutíma.

Þroskastig ávaxta og grænmetis hefur áhrif á útlit, áferð og bragð. Sumar tegundir halda áfram að þroskast eftir uppskeru en aðrar eru háðar því að vera tíndar á réttum tíma. Taflan hér að neðan sýnir hvaða ávaxta- og grænmetistegundir halda áfram að þroskast (t.d. verður grænn banani, sem flestum finnst óætur, gulur og sætari við geymslu) og hverjar ekki þroskast við geymslu.

Ávextir og grænmeti sem þroskast áfram eftir uppskeru

Ávextir og grænmeti sem ekki þroskast við geymslu

APRÍKÓSUR ANANAS
AVÓKADÓ APPELSÍNUR
ÁSTARALDIN BRÓMBER
BANANAR EGGALDIN
BLÁBER GRANATEPLI
EPLI GREIPALDIN
FERSKJUR GÚRKUR
GUAVA HINDBER
KÍVÍ JARÐARBER
MANGÓ KIRSUBER
MELÓNUR KLEMENTÍNUR
NEKTARÍNUR LITCHI
PAPAYA LÍMETTUR
PERUR MANDARÍNUR
PLÓMUR PAPRIKUR
TÓMATAR SÍTRÓNUR
SÍTRÓNUR
VÍNBER


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica