D-vítamín og skammdegið
Hvaðan fáum við D-vítamín?
D-vítamín myndast í húðinni fyrir tilstilli útfjólublárra geisla sólar. Hægt er að fá nægilegt D-vítamín með því að vera úti í sól með bert andlit og hendur í stuttan tíma á dag að sumri en á veturna er sól ekki nægilega hátt á lofti til að D-vítamín myndist í húðinni. Hér á Íslandi getur D-vítamín til dæmis aðeins myndast í húð frá því um miðjan mars og fram í september.
Því miður er ekki nóg að borða fjölbreytt og hollt fæði til að fá nóg af D-vítamíni. D-vítamín er í fáum fæðutegundum en þorskalýsi og feitur fiskur eru þær fæðutegundir sem hafa mest af D-vítamíni. Eggjarauða inniheldur einnig nokkurt magn D-vítamíns og eins eru Fjörmjólk og Stoðmjólk D-vítamínbættar.
Af hverju er D-vítamín mikilvægt?
D-vítamín gegnir mikilvægu hlutverki í kalkbúskap líkamans og er nauðsynlegt fyrir uppbyggingu beina. Einnig er talið hugsanlegt að D-vítamín geti haft hlutverki að gegna við að fyrirbyggja krabbamein, sjálfsónæmissjúkdóma, hjartasjúkdóma og gigt. Auk þess að stuðla að auknum vöðvastyrk og þannig dregið úr líkunum á að fólk detti og beinbrjóti sig.
Ráðleggingar
Samkvæmt ráðleggingum Lýðheilsustöðvar er hæfilegt að börn og fullorðnir, að 60 ára aldri, fái 10 míkrógrömm af D-vítamíni á dag en þeim sem komnir eru yfir sextugt er ráðlagt að fá 15 míkrógrömm á dag. Ein teskeið af þorskalýsi (5 ml) veitir ráðlagðan dagskammt af D-vítamíni fyrir börn og fullorðna að 60 ára aldri, en eldri en 60 ára þurfa eina og hálfa teskeið. Sérstök ástæða er til að benda foreldrum 6 ára grunnskólabarna á að muna eftir lýsinu. Hingað til hafa þau flest fengið lýsið í leikskólanum og því hefur ekki þurft að huga að því heima.
Bryndís Elfa Gunnarsdóttir,
verkefnastjóri næringar, Lýðheilsustöð
Ítarefni
Ráðleggingar um mataræði og næringarefni-fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri – bæklingur (sjá sérstaklega bls. 16. og 17.)
http://www.lydheilsustod.is/media/manneldi/utgefid//mataraedi-lowres.pdf
Vítamín og steinefni – fræðslubanki (D-vítamín)
http://www.lydheilsustod.is/vitamin/d-vitamin
Mikilvægara að fá nóg D-vítamín en ríflegt magn af kalki
http://www.lydheilsustod.is/frettir/naering-og-holdafar/nr/1224
Sterk bein brotna síður
http://www.lydheilsustod.is/greinar/greinasafn/manneldi/nr/218
