Hvað er RDS?
Ráðlagðir dagskammtar (RDS) er það magn nauðsynlegra næringarefna sem talið er fullnægja þörfum alls þorra fólks. Þarfir fólks fyrir næringarefni eru mjög breytilegar og því geta RDS gildin ekki sagt til um einstaklingsbundnar þarfir. Skammtarnir koma þannig fyrst og fremst að notum við að skipuleggja næringarútreiknaða matseðla og meta næringargildi fæðis fyrir hópa fólks eða sem viðmiðunargildi fyrir hollt fæði.
RDS gildin eru nokkru hærri en þörf flestra heilbrigðra einstaklinga, í einstaka tilfellum getur einstaklingur þó þurft meira af næringarefnum en RDS gildin segja til um. RDS miðast við þarfir heilbrigðs fólks. Fyrirburar, sjúklingar með efnaskiptasjúkdóma, sýkingar eða langvarandi sjúkdóma og einnig þeir sem taka lyf að staðaldri, hafa oft aðrar næringarþarfir. Næringarefni nýtast misvel úr fæðutegundum. Við ákvörðun skammtanna er gert ráð fyrir að næringarefnin komi úr blönduðu fæði með mismunandi nýtingu. Skortur á haldgóðum heimildum veldur því að ekki eru ákvarðaðir RDS fyrir öll nauðsynleg næringarefni. Frábrugðið RDS fyrir vítamín og steinefni, sem miða að því að fullnægja þörfum alls þorra fólks miða ráðleggingar um orku við meðalorkuþörf.
Ráðleggingar um orku, prótein, fitu, kolvetni, trefjaefni og salt er að finna í Ráðleggingum um mataræði og næringarefni og hafa þær verið samræmdar norrænum næringarráðleggingum.
