Sími : 5 800 900
Manneldi

Ráðlagðir dagskammtar (RDS 2005)

22.3.2006

Lýðheilsustöð-manneldisráð birta nýja ráðlagða dagskammta (RDS 2005) fyrir ýmis næringarefni og koma þeir í stað RDS frá 1996.

Ráðlagðir dagskammtar, töflur

RDS 2005 byggja í stórum dráttum á norrænum næringarráðleggingum, Nordic Nutrition Recommendations 2004 – integrating nutrition and physical activity (NNR 2004), sem unnar voru af vinnuhópi á vegum norrænu ráðherranefndarinnar og gefnar út á árinu 2005. RDS gildin eru byggð á gagnreyndri þekkingu og nýjustu rannsóknaniðurstöðum á sviði næringarfræði. RDS gildin eru því endurskoðuð reglulega með hliðsjón af nýrri þekkingu í næringarfræði. Ekki hafa verið gerðar miklar breytingar á ráðleggingunum frá fyrri útgáfu, en þó ber að nefna að RDS af A-vítamíni hefur verið lækkaður lítillega fyrir konur og af kalki fyrir börn, en hækkaður af D-vítamíni og C-vítamíni fyrir fullorðna og af fólati fyrir konur á barneignaaldri, barnshafandi konur og konur með barn á brjósti. Í þeim tilfellum sem ekki liggja fyrir niðurstöður rannsókna á börnum hafa RDS fyrir börn verið ákvarðaðir og reiknaðir út frá niðurstöðum rannsókna á fullorðnum og aðlagaðir að líkamsþyngd og orkuþörf barna. Í fyrsta sinn eru nú birtar ráðleggingar fyrir koparneyslu. Vegna skorts á haldgóðum heimildum hafa ekki verið ákvarðaðir RDS af bíótíni, pantóþensýru, krómi, flúor, mangani, molybdeni og K-vítamíni.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica