Sími : 5 800 900
Manneldi

Af megrunarkúrum - enn einu sinni

13.9.2005

Öllum er ljóst að offita er vaxandi hér á landi og í nálægum löndum. Ekki þarf heldur að fjölyrða um öll þau heilsufarsvandamál sem af offitu stafa. Flestir vita líklega líka að einfaldasta leiðin til að halda þyngdinni nokkurn veginn þar sem hún fer best er að hreyfa sig meira og borða minna. Vandinn er hins vegar að málið er ekki svona einfalt, þess vegna er allt að helmingur Íslendinga of þungur.

Offita er flókið samspil umhverfisþátta, hegðunar og erfða. Mjög miklu máli skiptir að forvarnir með upplýsingum og hvetjandi umhverfi verði efldar, enda stendur það til. Ástæða er þó til að minna enn einu sinni á að venjubundin hreyfing er sennilega ein einfaldasta, ódýrasta og tiltækasta aðgerð til almennrar heilsubótar sem nokkurn tíma er og verður völ á. Mörgum finnst það hins vegar vera of mikið í lagt og hverfa til megrunarkúra og vissulega förum við ekki varhluta af auglýsingum og umræðu um hvers kyns töfralausnir sem allar eiga að taka öðrum fram. Því miður er reyndin ekki þessi og í nýlegri rannsókn sem birtist í tímariti bandarísku læknasamtakanna fyrr á þessu ári kemur það enn fram.

Vísindamennirnir sem gerðu rannsóknina skoðuðu fjóra vinsæla megrunarkúra, þar sem einn byggði á lágum kolvetnum (margþekktur Atkins), annar var svonefndur “macrodiet”, sá þriðji byggði á takmörkun á kaloríufjölda og sá fjórði á lítili fitu. Öllum kúrunum fylgdi tveggja mánaða kennsla og ráðgjöf og fólki var síðan fylgt eftir einu sinni í mánuði með símtölum. Eftir eitt ár höfðu þátttakendur misst að meðaltali 2-3 kg og var enginn munur á milli hinna einstöku kúra né heldur var munur á því hve margir héldu kúrinn út. Svipaður árangur náðist í þeim öllum að því er laut að lækkun á kólesteróli, sem var reyndar lítil. Ávinningurinn varð hægur yfir tíma, en fólki var ekki fylgt eftir lengur þannig að ekki er vitað hver þróun þyngdarinnar varð. Gera má þó ráð fyrir því að flestir hafi þyngst aftur, enda er svo farið í fyrri rannsóknum á flestum megrunarkúrum.

Skilaboðin eru því enn hin sömu, að við þurfum að borða minna og hreyfa okkur meira, þó mörgum þyki það þungur boðskapur og erfiður.

Sigurður Guðmundsson
landlæknir



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica