Hreyfum okkur meira og göngum með barninu í skólann
Þetta er breytt og forráðamenn aka nú stórum hluta barna í skóla. Nú er svo komið að við marga skóla myndast umferðaröngþveiti hvern morgun. Öngþveitinu fylgja óþægindi vegna hávaða og útblásturs auk þess sem umtalsverð slysahætta skapast þegar börnin eru að skjótast á milli bíla.
Almennar hreyfiráðleggingar:
- Fullorðnir hreyfi sig með miðlungs* eða mikilli** ákefð í minnst 30 mínútur daglega.
- Börn og unglingar hreyfi sig með miðlungs eða mikilli ákefð í minnst 60 mínútur daglega.
Ýmsar vísbendingar gefa til kynna að kyrrseta fólks hafi aukist. Ekki síst vegna hraðvaxandi bílaeignar. Fólksbílum á hverja 1000 íbúa í Reykjavík fjölgaði t.d. um 33% á árunum 1996 – 2003. Skv. könnun á vegum Lýðheilsustöðvar nær ekki þriðjungur nemenda í 6., 8. og 10. bekk að hreyfa sig skv. ráðleggingum. Einungis um helmingur nemenda á þessum aldri gengur eða hjólar til skóla.
* Miðlungs ákefð, dæmi: Rösk ganga, garðvinna, heimilisþrif, sund og hjólreiðar
** Mikil ákefð, dæmi: Fjallganga, skokk, hlaup, flestar íþróttir stundaðar með árangur í huga
Sumir eiga ekki val og verða að aka börnum til skóla af einhverri ástæðu. Þeir eru líka margir sem aka börnum til skóla einmitt vegna aukinnar umferðar og mögulegrar slysahættu sem getur samhliða fylgt. Þetta er vítahringur sem vert væri að brjóta upp.
Auðvelt að bæta við hreyfinguna. Hreyfingarleysi og ofþyngd eru vaxandi meðal ungs fólks. Ofþyngd getur fylgt heilsufarslegur, sálrænn og félagslegur vandi. Ein leið til að bæta úr er að gera hreyfingu að sjálfsögðum kosti við daglegar athafnir, eins og t.d. ferðir um nánasta nágrenni.
Börn ættu, skv. ráðleggingum Lýðheilsustöðvar, að hreyfa sig að lágmarki klukkustund á dag og daglegar gönguferðir til og frá skóla eru þar gott innlegg. Við þurfum að ganga með börnunum til að kenna þeim að finna bestu og öruggustu leiðina í skólann, gangandi eða hjólandi.
Börn þurfa tilsögn til að læra að forðast hættur í umferðinni en besta leiðin til að forðast slys er að þau kynnist hættunum. Munum eftir endurskinsmerkjunum og að börn á hjóli verða að vera með öryggishjálm – og að þar þurfum við fullorðnu að vera góð fyrirmynd.
Gefum okkur tíma og göngum í skólann með barninu
Á göngunni gefst gott tækifæri til að ræða heimsmálin, fá hreyfingu í skrokkinn og hreint loft í lungun. Eitthvað sem bæði barni og foreldri verður gott af.
Haukur Þór Haraldsson
sviðsstjóri verkefnasviðs, Lýðheilsustöð
Greinin birtist í Morgunblaðinu 28. ágúst 2006
