Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hreyfing fyrir alla er tilraunaverkefni sem er ætlað að fjölga tilboðum á skipulagðri hreyfingu fyrir fullorðna og eldra fólk og þannig stuðla að aukinni hreyfingu þessa hóps. Aðstandendur verkefnisins eru Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við VR, Eflingu og framkvæmdaaðila á 6 tilraunasvæðum.
Lesa meiraHoldafar þjóðarinnar hefur verið mikið í umræðunni og þá ekki síst aukin tíðni ofþyngdar. Leitað er leiða til að sporna gegn þessari þróun og er ljóst að hollt mataræði og regluleg hreyfing leika þar stórt hlutverk.
Lesa meiraOrkan og fegurðin sem býr í landinu okkar er ómetanleg auðlind. Víðast hvar er hægt að stunda margs konar útivist í fjölbreyttu umhverfi sem gleður augað og önnur skilningarvit. Jarðvarminn færir okkur síðan heita vatnið sem þýðir að við getum synt utandyra allan ársins hring, óháð þeirri mislyndu veðráttu sem hér ríkir.
Lesa meiraHröð tækniþróun hefur stuðlað að mikilvægum framförum á mörgum sviðum en á sama tíma eru vísbendingar um að hún hafi dregið úr daglegri hreyfingu fólks. Má þar nefna að ofþyngd er algengari en áður og bílaeign hefur hraðvaxið en samkvæmt skýrslunni Umhverfisvísar Reykjavíkurborgar 2003 fjölgaði fólksbílum um 33% á hverja 1000 íbúa í Reykjavík á árunum 1996-2003.
Lesa meiraSumir líta á veturinn og það sem honum fylgir sem hressandi tilbreytingu á meðan aðrir sjá síður kostina við þessa árstíð. Það getur aftur skýrt hvers vegna sumir hreyfa sig meira á sumrin en á veturna. En er það ekki bara allt í lagi?
Lesa meiraÁramót sjá margir sem upphaf að nýju tímabili og þá um leið vettvang til að taka til í ,,geymslunni”. Árið sem er að líða er gert upp og línurnar lagðar fyrir það sem er að renna upp. Margir gera þetta bókstaflega og leggja línur fyrir línurnar, finnst þeir hafa verið í full nánu sambandi við sófann en nú skal tekið á því og bumbunni breytt í bretti.
Hreyfingarleysi og mataræði íslenskra barna hefur verið talsvert rætt að undanförnu, þar sem börnin hafa verið að þyngjast óeðlilega mikið. Matarvenjur heimilisins skipta þar miklu máli en einnig að börnunum standi til boða hollur og góður matur í skólanum og að þau fái næga hreyfingu. En hvað getum við helst gert til að stuðla að bættri heilsu barna okkar?
Lesa meira