Sími : 5 800 900
Geðrækt

Allt sem þú þarft að vita um líf með þunglyndi

2.5.2003

Þunglyndi er sjúkdómur sem fylgt hefur mannkyninu frá örófi alda. Í tímans rás hefur tilvist sjúkdómsins verið sveipuð dulúð og iðulega erfitt að ræða hana. Sjúkdómurinn hefur oft tengst lista- og framkvæmdafólki og verið orðaður við nokkur stórmenni sögunnar, s.s. Napóleon, Abraham Lincoln og ekki má gleyma hinum "svara hundi" Winston Churchill.

Formáli þýðanda
Þunglyndi er sjúkdómur sem fylgt hefur mannkyninu frá örófi alda. Í tímans rás hefur tilvist sjúkdómsins verið sveipuð dulúð og iðulega erfitt að ræða hana. Sjúkdómurinn hefur oft tengst lista- og framkvæmdafólki og verið orðaður við nokkur stórmenni sögunnar, s.s. Napóleon, Abraham Lincoln og ekki má gleyma hinum "svara hundi" Winston Churchill. Þunglyndi hafa ætið fylgt fordómar, enda sjúkdómurinn torskilinn og lítt áþreifanlegur. Að mínu mati hafa fordómar og vanþekking verið verstu óvinir þeirra sem greinast með sjúkdóminn. Á seinni árum í hinum siðmenntaða heimi stendur baráttan við viðtkein gildi og viðhorf enn. Fólk er enn hrætt og á erfitt með að ræða sjúkdóm eins og þunglyndi. Almenningur og atvinnurekendur eiga erfitt með að taka á málum meðbræðra sinna og systra sem þjást. Samfélagið er enn að reyna að mynda sér skoðun og nýja afstöðu gagnvart geðsjúkdómum og hvernig í ósköpunum eigi að taka á þeim og bregðast við þeim. Þessi málaflokkur hefur verið mér hugleikinn nú í hartnær tíu ár og ef það er eitthva varðandi viðmót og viðhorf fólks tilþessara hluta sem ég hef lært þá er það að fólk ræðir ekki geðsjúkdóma, sýnir þeim skilning eða endurskoðar afstöðu sína fyrr en einhver nærri þeim veikist. Fólk ræðir geðsjúkdóma því miður ennþá helst undir áhrifum, inni á baðherbergjum og í fatahengjum en ekki opinskátt fyrir framan alla í borðstofunni. Á Íslandi í dag eru teknar um 20.000 þunglyndistöflur á dag. Sú staðreynd segir meira en mörg orð um stærð vandans og hver marga hann snertir. Að breyta hugarfari tekur ár og áratugi, e.t.v. helu kynslóðirnar, en baráttan heldur áfram við að opna umræðuna og sigra fordómana. Tvö lykilorð í allri umgengni við geðsjúkdóma eru umburðaryndi og þolinmæði og með þessar dyggðir að leiðarljósi er það ósk mín að bók þessi verði enn einn bautasteinninn að bættri tilveru og geðrækt þeirra sem þjást af þunglyndi, aðstandenda þeirra og þjóðarinnar allrar.

Héðinn Unnsteinsson

Það skal tekið fram að bókin er til sölu hjá Geðhjálp og kostar þar 1.990 krónur. Ágóði af sölu Geðhjálpar rennur til félagsins. Hægt er að nálgast bókina á skrifstofu Geðhjálpar að Túngötu7, Reykjavík alla virka daga milli 09:00-16:00. Hringja í síma 570-1700 eða senda tölvupóst á: gedhjalp@gedhjalp.is og fá bókina senda.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica