Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
Með hverju ári sem líður verður veröldin flóknari og flóknari, allar þessar tækniframfarir, öll þessi tilboð allt sem við þurfum að eiga til að komast í gegnum daginn, já við erum sífellt að fá skilaboð um það að við getum ekki án þessa verið eða hins. Það er nauðsynlegt að eiga tölvu, farsíma, o.s.frv. (og maður spyr sig hvernig í ósköpunum fór fólk eiginlega að hér áður fyrr?). Öll þessi skilaboð í auglýsingunum ýta undir það að okkur langi alltaf í meira og meira og að við gleymum því sem við nú þegar eigum. Ef mann langar alltaf í eitthvað sem maður ekki á, þá verður maður aldrei hamingjusamur. Til þess að finna hamingjuna verður maður að kunna að meta og njóta þess sem maður á.
Að einfalda líf sitt þarf ekki að fela í sér að gerast einsetumaður á afskekktum stað. Þvert á móti því það getur verið ansi flókið að koma því við og ekki víst að öllum henti að lifa í of miklum einfaldleika og margt af því sem flækir lífið gerir það þess virði að lifa því. – Já sumar flækjur eru góðar: mannleg samskipti eru flókin en ekki væri farsælt að sleppa þeim og margt af því sem gefur lífinu hvað mest gildi getur verið ansi flókið en slíkar flækjur viljum við ekki losa okkur við. En þetta er ekki bara svart og hvítt því það getur verið að sumt flæki lífið hjá einhverjum meðan það einfaldar líf annarra, eins og t.d. tölvur og farsímar. Þessi tæki hafa opnað nýja möguleika t.d. í starfi og námi sem ekki voru til staðar áður. Fólk þarf bara að læra að nota þessi tæki á skynsaman hátt og átta sig á því að það er hægt að slökkva á þeim inn á milli. Aðrar flækjur eru alltaf slæmar og orkukrefjandi og þær þurfum við að forðast ....geðorðið segir nefnilega flæktu ekki líf þitt að óþörfu Við þurfum að greina úr flækjunum okkar. Hvaða flækjur taka frá okkur orku og hvaða flækjur auðga líf? Að flækja okkur í óþarfa áhyggjum tekur frá okkur orku. Það reynist okkur ekkert auðveldara að takast á við eitthvert vandamál eða verkefni þó við höfum haft áhyggjur af því á undan.
Áhyggjur þjóna í fæstum tilfellum einhverjum tilgangi og því eru þær dæmi um flækjur sem taka frá okkur orku og gefa okkur ekkert í staðinn. Það er ekki hægt að finna frið og sálarró þegar hugurinn er fullur af áhyggjum og pirringi. Að halda að maður geti ekki verið án einstakra veraldlegra hluta flækir lífið einnig að óþörfu og kemur í veg fyrir að við getum notið þess sem við eigum núna. Að flækja sér í eigin hugsanir um allt sem maður á eftir að gera t.d. fyrir jólin eykur einnig spennu og streitu í lífinu. Reynum að finna óþarfa flækjurnar í lífinu okkar og losum okkur við þær, losum okkur við áhyggjur af því sem á eftir að gera fyrir jólin, látum jólainnkaupin ekki setja okkur út af laginu og gleymum ekki að jólin eru hátíð gleði og friðar. Njótum gleðinnar og friðarins í sátt við okkur sjálf og þökkum fyrir allt það góða sem við eigum eins og fjölskyldu og vini sem auðga líf okkar.
