Vinir Zippýs
Skráning á kennaranámskeið
Vinir Zippýs er alþjóðlegt lífsleikninámsefni fyrir yngstu börnin sem kennt er víða um heim með góðum árangri. Lýðheilsustöð hefur látið þýða og gefa út námsefnið og leggur grunnskólum það til auk námskeiðs fyrir kennara skólunum að kostnaðarlausu.
Áður en námsefnið er tekið til kennslu þurfa kennarar að sækja eins dags námskeið og fá að því loknu afhent námsefnið í heild sinni.
Sjá útbreiðslu námsefnisins.
Fara á forsíðu Vinir Zippýs
Námskeiðsdagar fyrir haust 2011
Ný námskeið eru auglýst jafn óðum. Dagskrá námskeiðs má nálgast með því að smella á tengilinn.
Höfuðborgarsvæðið, næst:
- 17. ágúst (mið.) kl. 8:30-16:30. Leikskólaskrifstofa Hafnarfjarðar, Strandgötu 31, 2. hæð (sama hús og Eymundsson)
- 18. ágúst (fim.) kl. 8:30-16:30. Leikskólaskrifstofa Hafnarfjarðar, Strandgötu 31, 2. hæð (sama hús og Eymundsson)
Skráningar sendist á netfangið solveig@lydheilsustod.is
Námskeið sem haldin voru á höfuðborgarsvæðinu árið 2010:
- 13. ágúst (fös.) kl. 8-16 í Safnaðarheimili Hafnafjarðarkirkju
- 17. ágúst (þri.) kl. 9-16 í Víkurskóla, Grafarvogi
- 18. ágúst (mið.) kl. 9-16 í Víkurskóla, Grafarvogi
- 28. október (fim.) kl. 13-18, Hamraskóla, Dyrhömrum 9, 112 Reykjavík
- 10. nóvember (mið.) kl. 13-18, Lýðheilsustöð, Laugavegi 116, 105 Reykjavík
Námskeið sem hafa verið haldin á landsbyggðinni árið 2010:
- 19. ágúst (fim.) Borgarnes, Grunnskólanum Borgarnesi
Dreifðu um vefinn / Facebook
