Sími : 5 800 900
Geðrækt

Fræðsla um geðheilbrigði á átta tungumálum

4.10.2007

Guðrún Guðmundsdóttir skrifar í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdeginum: "Geðorðin 10 eru einföld ráð en um leið mikilvægur leiðarvísir í daglegu lífi."

- Grein birt í Morgunblaðinu 3. október, 2007

Gurðrún Gunnarsdóttir

Í TILEFNI af árlegum alþjóða geðheilbrigðisdegi, 10. október, sem hefur yfirskriftina: ,,Geðheilbrigði í breyttum heimi: Áhrif menningar og margbreytileika" (Mental Health in a Changing World: The Impact of Culture and Diversity) hefur Lýðheilsustöð látið þýða Geðorðin 10 á sex tungumál. Geðorðin eru því nú til á alls átta tungumálum; pólsku, serbnesku, rússnesku, taílensku, albönsku, víetnömsku, ensku og svo auðvitað íslensku. Við þróun Geðorðanna 10 var leitað í rannsóknir sem tengdust hamingju, vellíðan og velgengni en ekki einkennum og sjúkdómsgreiningum.Geðorðin 10 eru einföld ráð en um leið mikilvægur leiðarvísir í daglegu lífi. Þau minna á ábyrgð hvers og eins á eigin lífi en einnig samfélagslega ábyrgð gagnvart öðrum. Fyrsta geðorðið "Hugsaðu jákvætt, það er léttara" er því undirstaða vellíðunar því án jákvæðra hugsana er engin vellíðan og halda má því fram, að tilfinningalegt heilbrigði sé lykillinn að hamingjuríku lífi og velgengni.

Gedraekt-TalenskaFólki af erlendum uppruna, sem kýs að setjast að á Íslandi, hefur fjölgað hratt á undanförnum árum. Þekkt er að mikil streita og vanlíðan getur verið því samfara að flytjast búferlum í umhverfi sem hefur framandi menningarleg viðmið og/eða tungumál og mörgum getur reynst erfitt að finna áhrifaríkar leiðir til að takast á við andlega vanlíðan, erfiðleika og vonbrigði. Í sumum löndum eru auk þess ríkjandi miklir fordómar í garð andlegrar vanlíðunar og geðsjúkdóma og fólk segir ekki frá slíkri vanlíðan af ótta við útskúfun og stimplun samfélagsins.

Markmið Lýðheilsustöðvar er fyrst og fremst að efla geðheilbrigðisvitund allra landsmanna með því að þekking á geðorðunum verði almenn og að fólk nýti efnið sér til geðheilsueflingar. Stefnt er að því að með aukinni þekkingu á geðheilbrigði, og þeirri staðreynd að geðheilsa er hluti af almennu heilsufari, muni draga úr neikvæðu viðhorfi til þeirra sem eiga við andlega vanlíðan eða geðröskun að stríða og að það dragi úr fordómum.

Geðorðin á öllum tungumálun er hægt að nálgast á heimasíðu Lýðheilsustöðvar (www.lydheilsustod.is) undir Geðrækt og prenta þau beint af síðunni eftir þörfum (hér).

Geðrækt fyrir 6 - 7 ára börn

Lýðheilsustöð stendur fyrir því að innleiða lífsleikninámsefnið Vinir Zippýs í grunnskóla landsins. Um er að ræða forvarnarverkefni á sviði geðræktar fyrir 6 til 7 ára börn sem kennt hefur verið með góðum árangri víða um heim og í mismunandi menningarumhverfi.

Mikil áhersla er lögð á aðkomu foreldra að þessu verkefni og liður þar í er að allir foreldrar barna sem læra um Vini Zippýs fá kynningarbækling um námsefnið, áður en börnin hefja námið. Þessi bæklingur verður einnig þýddur á sömu tungumál og Geðorðin 10 - og eins og þau er bæklinginn að finna á heimasíðunni (hér).


Höfundur er hjúkrunarfræðingur MS,
verkefnisstjóri Geðræktar hjá Lýðheilsustöð.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica