Hvað þarf til að viðhalda góðu rómantísku sambandi?
Sumarið er tíminn til að elska, vera ástfanginn og hafa gaman af því. Að elska og vera elskaður tilbaka, er stórkostleg tilfinning. Ef einhver efast um það, þá eru til rannsóknir málinu til stuðnings. Sálfræði-prófessorarnir Ed Diener og Martin Seligman gerðu rannsókn árið 2002 á mjög hamingjusömu fólki sem sýndi að allir þeir sem töldu sig mjög hamingjusama áttu í rómantísku sambandi við aðra manneskju. Í athugunum mínum á því hvað einkennir hamingjusama Íslendinga virðist það, að vera í sambúð, spá best fyrir um hamingju af þeim þáttum sem skoðaðir voru. Sambúðin hafði þannig margfalt sterkari áhrif á hamingju en t.d. peningar.
Hvað einkennir góð sambönd?
En hvernig er hægt að láta ástina lifa lengur en út sumarið. Að sjálfsögðu er ekki til nein töfra uppskrift að góðu sambandi en það má fá ýmsar vísbendingar með því að skoða hvað einkennir heilbrigð sambönd. Hornsteinar góðs sambands eru virðing og traust fyrir hvort öðru. Það felur einnig í sér virðingu fyrir sjálfum sér og eigin tilfinningum.
Einnig er mikilvægt að hafa raunhæfar væntingar til hvors annars og til sambandsins. Það er ekki raunhæft að ætla makanum að uppfyllir allar óskir og fullnægja öllum þörfum. Einnig er mikilvægt að gera ekki þær væntingar til sambandsins að það leysi allan vanda og veiti þér hamingju án þess að þú þurfir að hafa nokkuð fyrir því. Þú ert og verður alltaf, þinnar eigin gæfu smiður, það getur enginn annar borið ábyrgð á þinni hamingju.
Samskipti
Einn mikilvægasti þátturinn í heilbrigðu sambandi er að geta talað saman og hlustað á hvort annað. Það er dýrmætt að geta deilt áhugamálum, tilfinningum, áhyggjum og sorg með maka sínum vitandi það að honum er treystandi. Með því að hlusta vandlega á maka þinn og deila með honum bæði hugsunum þínum og tilfinningum sýnir þú honum að hann er mikilvægur hluti af lífin þínu.
Ákveðið samskiptamynstur skapast oft í upphafi sambands og mótar það áfram. Pör sem byrja ung saman þurfa oft að vinna í því að þroska þetta mynstur. Ef samskiptamynstrið er ekki nógu gott þá þarf að vinna að því markvisst að bæta það. Það getur oft reynst erfitt og þá getur verið gott að fá hlutlausan aðila til að aðstoða við það. Þá geta báðir aðilar fengið að segja sína hlið og fá svo leiðbeiningar um úrbætur frá hlutlausum aðila.
Samskiptavandamál eru algeng ástæða fyrir því að samband gengur ekki vel. Nokkrar góðar samskiptareglur geta oft hjálpað. Það getur verið gott að leggja meiri áherslu á að segja makanum hvernig þér líður varðandi eitthvað sem þú ert ekki sátt við eins og ,,mig sárnar þegar....” eða ,,ég finn fyrir óöryggi...” í stað þess að fara út í yfirheyrslur eða ásakanir. Með þessu móti hjálpar þú maka þínum að skilja viðbrögð þín.
Önnur regla varðar það hvernig við finnum að einhverju í fari makans, þar skiptir höfuðmáli að beina athyglinni að hegðuninni sem þú vilt gera athugasemd við en ekki ráðast á persónu maka þíns. Til dæmis ,, mér finnst leiðinlegt þegar þú hendir fötunum þínum á gólfið”, eða ,,ertu til í að setja óhreinu fötin í körfuna” í stað þess að segja ,,þú ert svo mikill sóði.....vonlaus....óþolandi!!!” Athugasemdir sem beinast að persónu viðkomandi eru meira særandi, hafa dýpri áhrif auk þess sem þær gefa litla vísbendingu um hvað megi betur fara. Rannsókn á langtíma samböndum sýndi að hamingjusömustu pörin notuðu ekki niðrandi orð um persónu hvors annars þó oft væri deilt um hlutina.
Að leysa saman úr ágreiningi
Það er ekki nauðsynlegt að vera alltaf sammála en það er mikilvægt að geta haldið ró sinni og ná að segja hvernig manni líður þegar upp kemur ágreiningur. Að tala rólega og sleppa því að æsa sig hjálpar til við að komast að orsök ágreiningsins og þannig er mun einfaldara að leysa úr honum. Að leysa saman úr ágreiningi getur haft jákvæð áhrif á samband og gert það sterkara.
Öll sambönd eiga sínar hæðir og lægðir, þannig má finna álagstíma í öllum samböndum. Spurningin er bara hvernig tekist er á við þau. Þegar borin eru saman heilbrigð sambönd við óheilbrigðari sambönd kemur í ljós að í þeim heilbrigðu eru færri álagstímabil og þau vara í styttri tíma. Með öðrum orðum; þar er tekist á um hluti eða rökrætt á skömmum tíma og málið leyst svo það trufli ekki sambandið síðar meir.
Að lokum
Hugsaðu um það hvað geti gert maka þinn ánægðan, þetta er ekki bara göfugt markmið um að setja maka sinn í fyrsta sæti og gleyma sjálfum sér því ef manni tekst að gera maka sinn ánægðan þá fær maður það sjálfur margfalt tilbaka í ánægðum maka. Mundu að sambandið verður aldrei betra en það sem þú leggur í það. Þú uppskerð ekki ást, virðingu og traust í sambandi nema þú sáir því fyrst.
Molar / Samantekt:
- Byggðu sambandið á virðingu og trausti
- Gerðu raunhæfar kröfur til maka þíns og sambandsins
- Segðu maka þínum hvernig þér líður varðandi það sem þú ert ósátt við frekar en að yfirheyra hann eða ráðast á hann með ásökunum
- Beindu aðfinnslum að verkum eða hegðun en ekki persónu maka þíns
- Það er allt í lagi að vera ósátt, ef maður leysir úr ágreiningnum í sameiningu
- Þú uppskerð ekki ást, virðingu og traust nema þú sáir því fyrst
|
Einkenni fyrir gott samband: |
Einkenni fyrir slæmt samband: |
|
Það er skemmtilegt |
Leiði, reiði, kvíði, áhyggjur, sektarkennd |
|
Góð samskipti |
Slæm samskipti |
|
Traust og heiðarleiki |
Vantraust og óheiðarleiki |
|
Löngun til að vera saman |
Fjarlægð |
|
Skilningur |
Skilningsleysi |
|
Jafnvægi í að gefa og þiggja |
Ójafnvægi í að gefa og þiggja |
|
Öryggistilfinning |
Óöryggi |
|
Lætur þér líða vel með sjálfa/n þig |
Lætur þér líða illa með sjálfa/n þig |
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð
