Sjálfshjálparbækur - er eitthvað vit í þeim?
Hvatning um að bera ábyrgð á eigin heilsu og líðan verður meira áberandi með ári hverju. Sífellt fleiri einstaklingar velja að taka þessa ábyrgð og hlúa vel að eigin heilsu, ekki bara til að koma í veg fyrir sjúkdóma heldur einnig til að auka gæði lífsins. Til að axla þessa ábyrgð er mikilvægt að hafa greiðan aðgang að upplýsingum um hvaða atriði skipta máli til að halda góðri heilsu og ná að njóta lífsins.
Sjálfshjálparbækur
Í starfi mínu í gegnum tíðina hef ég leitað ýmissa leiða til að gera fólk meðvitaðra um geðheilsu sína og hvað það getur gert til að hlúa að henni og auka eigin vellíðan. Einn liður í þessari leit var að skoða sjálfshjálparbækur kerfisbundið. Ég komst fljótt að því að þær voru eins misjafnar og þær voru margar. Sumar voru fallegar, með fallegan titil, mikið lagt í forsíðu og því vænlegar til gjafa. Aðrar voru með fráhrindandi titli og einfaldri bókarkápu en ég komst fljótt að því að útlitið sagði ekki allt.
Alhæfing út frá reynslu einstaklings
Eftir að hafa skoðað nokkuð margar bækur fór ég að geta greint þær gróflega í tvo flokka, þær sem byggja á upplifun einnar manneskju og hins vegar þær sem byggja á rannsóknum. Í fyrrnefnda flokknum eru bækur þar sem höfundar byggja á reynslu sinni við að betrumbæta líf sitt, eins og að grennast, hætta að reykja eða finna tilgang með lífinu. Þessar bækur ná oft miklum vinsældum og ganga flestar út frá því að hægt sé að yfirfæra þá aðferð sem virkaði fyrir viðkomandi á alla aðra. Aðferðirnar einkennast oft af skyndilausnum sem þykja ekki ákjósanlegar né vænlegar til árangurs þegar til lengri tíma er litið.
Ráð sem byggja á rannsóknum
Hinn flokkurinn inniheldur bækur sem byggja á rannsóknarniðurstöðum. Þar reyna sérfræðingar eftir fremsta megni að þýða niðurstöður rannsókna yfir á mannamál. Á bak við slík ráð er ekki reynsla einnar manneskjur heldur reynsla fjölda ólíkra einstaklinga sem eiga að endurspegla heildina. Þessar bækur eru mér að skapi og ég ber mikla virðingu fyrir því fræðifólki sem gefur sér tíma til að koma niðurstöðum rannsókna til almennings. Það er nokkuð takmarkað að birta rannsóknarniðurstöður eingöngu í fræðiritum þar sem einungis aðrir fræðimenn geta lesið þær. Það er mun áhrifameira þegar niðurstöður rannsókna ná til almennings því þannig gefst fleirum færi á að taka upplýsta ákvörðun út frá því sem vitað er um viðkomandi efni.
Skyndilausnir valda vonbrigðum til lengri tíma
Mitt svar við spurningunni hvort eitthvað vit sé í sjálfshjálparbókum er því á þá leið að það fer eftir grunninum sem bókin byggir á. Þær bækur sem byggja á rannsóknum eru mun áreiðanlegri en aðrar, svo framarlega sem rannsóknirnar eru góðar. Reynslusögur geta líka haft jákvæð áhrif í vissum tilfellum en bækur sem boða skyndilausnir eða byggja á loforðum um að hægt sé að breyta þáttum sem sýnt hefur verið fram á að ekki er hægt að breyta til langs tíma, geta hins vegar valdið lesandanum vonbrigðum og gert illt verra.
Ráðleggingar um góða sjálfshjálp
Í bókinni ,,Authorative Guide to Self-Help Resources in Mental Health” eftir Norcross og félaga, er að finna gott yfirlit og einkunnagjöf yfir sjálfhjálparbækur, ævisögur, myndir og heimasíður eftir mismunandi efnum varðandi:
Skapsveiflur, misnotkun, fíkn, kvíða, reiði, sorg, skilnað, átraskanir, fjölskyldumál, kynlíf, Alzheimer, offitu ofl.
Dæmi um sjálfshjálparbækur sem byggja á rannsóknum:
- What You can Change and What You Can’T, eftir Martin Seligman.
- The Pursuit of Happiness, eftir David Myers.
- Learned Optimism: How to Change Your Mind and Your Life, eftir Martin Seligman
- The 100 simple secrets of Happy People: What Scientist Have Learned and How You Can Use it, eftir David Niven.
Á íslensku:
- Láttu ekki smámálin ergja þig... því öll mál eru smámál, eftir Richard Carlson.
- Leggðu rækt við sjálfan þig, eftir Önnu Valdimarsdóttur.
Samantekt:
- Gæði sjálfshjálparbóka fer eftir grunninum sem þær byggja á
- Þær sem byggja á rannsóknum endurspegla reynslu ólíkra einstaklinga
- Skyndilausnir eru ekki vænlegar til árangurs
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð
Birtist í Ísafold í júní, 2007
