Sími : 5 800 900
Geðrækt

Að breyta hálftómu glasi í hálffullt

- bjartsýni í stað svartsýni -

23.4.2007

Hvernig stendur á því að sumir sjá glasið hálftómt meðan aðrir sjá það hálffullt? Hvað veldur því að ákveðnir einstaklingar eru fullir af von og bjartsýni um að allt fari á besta veg meðan aðrir eygja ekki von og gera ráð fyrir að allt fari á versta veg?

Þessi munur getur komið fram snemma á lífsleiðinni. Við getum tekið eftir honum hjá ungum börnum og foreldrar spyrja sig oft hvernig standi á því að eitt barnanna gefst aldrei upp sama hvað á reynir meðan systkini þess búist við því að allt fari á versta veg og reyni því ekki að takast á við mótlæti.

Bjartsýni og svartsýni

Sálfræðingar hafa leitað skýringa á þessu um áratuga skeið. Einn þeirra, Martin Seligman hefur rannsakað bjartsýni og svartsýni í 35 ár. Hann telur að bjartsýni og svartsýni ráðist af því hvernig fólk skýrir aðstæður sem það lendir í. Þó ekki sé hægt að skipta fólki í tvo hópa sem annaðhvort svartsýnt eða bjartsýnt getur það hjálpað til við að skilja hugtökin að tala um hina bjartsýnu og svartsýnu. Hinn svartsýni trúir því að slæm atvik muni vara í langan tíma og séu honum að kenna á sama tíma og hann vanmetur hvað hann getur gert sjálfur til að breyta þeim. Hann bendir á að hinir bjartsýnu sjá sömu slæmu atvikin í öðru ljósi. Þeir trúa að ófarir séu tímabundið bakslag og að orsökin liggi annars staðar en hjá þeim sjálfum. Þeir kenna aðstæðum, óheppni eða öðru fólki um.

Bjartsýnir standa betur á flestum sviðum

Neikvæðni getur litið út fyrir að vera góður varnarháttur. Einhverjir gætu talið sér trú um að með því að halda væntingunum nógu lágum þá verði maður síður fyrir vonbrigðum. En rannsóknir sýna að neikvæðni og svartsýni, ekki aðeins skemma stemmninguna og koma í veg fyrir að maður eignist vini, heldur eru slæm varðandi nánast hvað sem er. Fjöldi rannsókna sýna að svartsýnir gefast upp fyrr og eru líklegri til að verða þunglyndir. Þeim bjartsýnu gengur betur á flestum sviðum í lífinu, hvort sem um er að ræða, vinnu, skóla, íþróttir eða sambönd. Þeir verða síður þunglyndir en þeir sem eru svartsýnir, eru með hærri tekjur og ánægjulegra samband bæði við maka og vini. Það þarf varla að taka það fram að það er há fylgni er á milli bjartsýni og hamingju.

Bjartsýni skapar fleiri tækifæri

Það er erfiðara að slá hina bjartsýnu út af laginu og því eiga þeir auðveldara með að sjá ófarir sem áskorun, eitthvað sem þeir geta tekist á við og sigrast á. Með þessa sýn að leiðarljósi leggja þeir sig meira fram við að komast yfir erfiðleika og ná því oftar árangri en þeir svartsýnu. Hinn bjartsýni er jafnframt líklegri til að fá það sem hann sækist eftir en hinn svartsýni. Þessar staðreyndir endurspeglast í lífi okkar og starfi. Það segir sig sjálft að bjartsýni hvetur starfsmann áfram og eykur líkur á að hann biðji um stöðuhækkun, í versta falli fær hann synjun og í besta falli stöðuhækkun! Svartsýni samstarfsmaðurinn hans getur ekki gert sér vonir um stöðuhækkun ef hann leggur ekki í það að spyrja. -Sá sem ekki spyr á ekki möguleika.

Það er hægt að temja sér meiri bjartsýni

Sumir hafa sterkari tilhneigingu til bjartsýni en aðrir. Góðu fréttirnar eru þær að hægt er að kenna fólki að temja sér meiri bjartsýni en það býr við. Að temja sér bjartsýni felur í sér að þjálfa upp ákveðna færni í að stoppa vítahring neikvæðra hugsana um að allt fari á versta veg og ,,rökræða” við sjálfan þig þegar þú lendir í mótlæti. Margir sálfræðingar geta leiðbeint fólki við að temja sér meiri bjartsýni og þannig hjálpað því að sjá glasið hálf fullt í stað þess að sjá það hálf tómt. Það er miklu skemmtilegra!


Fróðleiksmolar:

Þeim sem vilja vinna í því sjálfir að temja sér meiri bjartsýni bendi ég á bók Martin Seligman: ,,Learned Optimism” (því miður ekki til á okkar ástsæla tungumáli – ennþá).

Mat á bjartsýni - svartsýni

Til eru sálfræðileg próf sem meta svartsýni og bjartsýni samkvæmt tilfinningum þínum um hindranir og sigra í þínu lífi. Þar eru staðhæfingar eins og:

Á óvissutímum, geri ég venjulega ráð fyrir að allt fari á besta veg             (bjartsýni)

Ef eitthvað getur farið úrskeiðis hjá mér, þá fer það úrskeiðis                  (svartsýni)

Niðurstöður rannsókna:

Svartsýni hefur háa fylgni við

  • þunglyndi
  • veikindi
  • lélegan árangur í námi, íþróttum og vinnu

Bjartsýni hefur háa fylgni við

  • hamingju og lífsánægju
  • góða heilsu
  • góðan árangur í námi, starfi og íþróttum

Bjartsýni hjálpar í mörgum  í tilfellum en á ekki alltaf við

Bjartsýni hjálpar:

  • Þegar þú hefur áhyggjur af líðan þinni (berjast við depurð) þá kemur sér vel að reyna að sjá björtu hliðarnar.
  • Þegar þú þarft að ná árangri (stöðuhækkun, próf, keppni) aukast líkurnar á góðum árangri til muna með bjartsýnu hugarfari.
  • Ef þú vilt hafa áhrif á aðra, fá aðra með þér, vera leiðtogi, hjálpar mikið að hafa von og bjartsýni að leiðarljósi.

Bjartsýni á ekki við

  • Þegar þú leggur mat á eitthvað verulega áhættusamt – getur of mikil bjartsýni verið glæfraleg því þá getur verið gott að taka með í reikninginn að ef til vill fari ekki allt á besta veg. Dæmi: hvort þú sest upp í bíl hjá ókunnugum eða ferð yfir á rauðu ljósi.
  • Þegar þú vilt sýna öðrum samúð á erfiðum tímum, (of mikil bjartsýni getur gert lítið úr erfiðleikum viðkomandi til að byrja með), þó bjartsýni geti hjálpað seinna meir og jafnvel verið nauðsynleg til að komast í gegnum erfiðleikana.

 

Höfundur:

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
Verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð

Birtist í Ísafold í apríl 2007

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica