Sími : 5 800 900
Geðrækt

Að takast á við mótlæti

- enginn hefur lofað því að lífið verði auðvelt -

12.3.2007

Áföll geta átt sér ólíkar rætur. Það getur t.d. verið áfall að missa vinnu, heilsu eða félaga í gegnum vinslit eða skilnað og ástvinamissir getur skilið eftir sig djúp sár. Mikill munur er á því að missa vinnu og ástvin og áfallið í kjölfarið því ólíkt. Einnig getur verið munur á ástvinamissi, eftir aðstæðum eins og aldri þess sem deyr og hvernig missirinn ber að. Í öllum tilfellum er þó nauðsynlegt að horfast í augu við missinn og takast á við hann. Það getur hjálpað til að taka meðvitaða ákvörðun um hvernig best sé að bregðast við.

Ástvinir kveðja

Að takast á við alvarleg veikindi fjölskyldumeðlima, þá staðreynd að lífið tekur enda og ástvinamissi, er eitthvað sem allar fjölskyldur þurfa að takast á við þegar elstu meðlimir komast á efri árin. Þó að allt þetta sé hluti af lífinu er ekki þar með sagt að það sé áfallalaust.

Fólk getur upplifað mikla streitu við að annast veikan eða aldraðan ástvin. Umönnun ástvinar á dánarbeði og að fylgjast með honum deyja getur verið með erfiðustu lífsreynslu sem manneskja gengur í gegnum.

Fyrirfram mótaðar hugmyndir um sorgarferlið

Fólk er oft með fyrirfram mótaðar hugmyndir um það hvernig aðrir eiga að bregðast við missi. Þessar hugmyndir um það hvernig fólk eigi að vinna sig í gegnum sorgina byggja á gömlum kenningum. Sú útbreidda hugmynd að fólk verði að vinna sig í gegnum sorgina á ákveðinn hátt hefur verið mjög ráðandi um margra ára skeið. Þá er gert ráð fyrir því að sorgarferlið hafi ákveðið upphaf og enda og á því ferli þurfi viðkomandi að vinna sig út úr sorginni.

Farsælla að skoða hvert tilfelli fyrir sig

Jafnvel þó margir fari í gegnum ákveðið sorgarferli þá eru aðrir sem gera það ekki. Sorgin getur komið fram á ólíkan hátt og því þarf hver og einn að finna fyrir sig hvernig best er að bregðast við. Fyrirfram ákveðið sorgarferli getur leitt til þess að þeir sem ekki finna fyrir þeim tilfinningum sem gert er ráð fyrir í ferlinu finni til sektarkenndar yfir því að vera ekki að ,,syrgja rétt”. Rannsóknir hafa sýnt að fyrirfram mótaðar hugmyndir um sorgarferli geti dregið úr því að hver og einn finni sína eigin styrkleika sem geta hjálpað til við að takast á við missinn.

Að gera ráð fyrir mótlæti

Lífið er ekki áfallalaust og það hefur enginn lofað því að það verði auðvelt. Með því að huga að því hvernig best er að takast á við mótlæti og taka meðvitaða ákvörðun um að vinna úr því, er hægt að draga úr neikvæðum afleiðingum þess. Þeir sem ná að vinna sig á jákvæðan hátt út úr mótlæti læra oft að meta lífið á nýjan hátt og kynnast áður óþekktum styrkleikum. Það er því mikilvægt að gefast ekki upp þó á móti blási.

 

Hvort sem við höfum misst vinnu, heilsu eða vin er mikilvægt að hafa í huga að:

  • engin ein leið er rétt til að takast á við mótlæti
  • það er styrkleiki að geta þegið aðstoð 
  • fyrirfram ákveðnar hugmyndir um sorgarferli geta aukið álagið
  • hver og einn þarf að finna fyrir sig hvernig hann vill takast á við mótlæti, hvort sem það er fólgið í því að tala um það eða vinna að öðru
  • við áfall í kjölfar missis gildir það sama og um önnur áföll að hugarfarið getur skipt sköpum, með því að líta á áfallið sem áskorun, sem hægt er að takast á við, aukast líkurnar á að sárið grói, þó örið verði alltaf til staðar

 

Rannsóknir hafa sýnt að

  • það sem greinir einna helst á milli þeirra sem farnast vel í lífinu og hinna, er hvernig tekist er á við mótlæti.
  • þeir sem ná að líta á mótlæti sem verkefni til að takast á við eru líklegri til að öðlast velgengni í lífinu en þeir sem forðast að takast á við það.

 

Höfundur:

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð

Birtist í Ísafold í mars 2007

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica