Það er engin heilsa án geðheilsu
Á Íslandi er alþjóða geðheilbrigðisdagurinn nú haldinn hátíðlegur í 10. skiptið með fjölbreyttum hætti. Lýðheilsustöð-Geðrækt munu m.a. standa fyrir kynningarátaki nú á haust- og vetrarmánuðum þar sem Geðorðin 10 verða kynnt.
Geðorðin 10 eru tíu setningar sem minna á hvað við getum gert daglega til að efla geðheilsuna. Geðorðin eru byggð á eiginleikum sem taldir eru einkenna þá sem búa við velgengni í lífinu – og þeir sem tileinka sér að lifa í samræmi við boðskap geðorðanna eru líklegri til að búa við hamingju og velferð í sínu lífi.
Geðorðin 10 greinaskrif í Morgunblaðið
Á næstu 10 vikum munu birtast stuttir pistlar í Morgunblaðinu þar sem einstaklingar úr íslensku samfélagi taka fyrir eitt geðorð hver og túlka á sinn hátt. Fyrsti pistillinn birtist laugardaginn 24. september og hefur yfirskriftina „Hugsaðu jákvætt, það er léttara”.
Geðorðin 10 á alla strætisvagna
Geðorðin 10 eiga svo eftir að birtast á öllum strætisvögnum í Reykjavík, eitt geðorð á hverjum vagni í einn mánuð.
Geðorðin 10 á alla ískápa - jólagjöf sveitarfélaga til heimilanna í landinu
| Segull á íslensku | Segull á ensku |
|---|---|
![]() |
|
Lýðheilsustöð hefur látið setja geðorðin á segla, ætlaða á ísskápa og boðið sveitarfélögum að fá slíka segla sér að kostnaðarlausu til að dreifa á öll heimili í sveitarfélaginu. Þetta verður gert rétt fyrir jólin og má líta á sem jólagjöf til heimila í landinu frá Lýðheilsustöð og sveitarfélögunum.
Geðræktarkassinn
Geðræktarkassinn verður einnig kynntur, en slíkur kassi er að sögn höfundar hans, Elínar Ebbu Ásmundsdóttur, eins nauðsynlegur á hverju heimili og sjúkrakassi.
Geðrækt fyrir börn
Andleg og líkamleg heilsa barna og unglinga leggur grunninn að velferð þeirra. Því er mikilvægt að allt forvarnarstarf taki mið af þessu samspili.
Vinir Zippý eða „Zippy´s Friends“ verkefnið er forvarnaverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn (geðrækt fyrir börn) sem er að hefjast hjá Lýðheilsustöð. Um er að ræða námsefni ætlað 6-7 ára börnum sem notað hefur verið með góðum árangri víða um heim. Á ráðstefnu, sem haldin verður að Hótel Loftleiðum þann 7. október í tengslum við alþjóða geðheilbrigðisdaginn, verður þetta verkefni kynnt sérstaklega. Á ráðstefnunni verður auk þess sem fjallað er um mikilvægi forvarnarstarfs á sviði geðheilsu, stöðuna í geðheilbrigðismálum á Íslandi í dag nú og áhugaverð úrræði í geðheilbrigðismálum.
Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur MS
verkefnisstjóri Geðræktar


