Sími : 5 800 900
Árvekni

Leikur með eld

30.4.2004

Hrifning barna á eldi byrjar snemma. Börnum finnst t.d. gaman að horfa á kertaljós og fá að blása til að slökkva ljósið.

Leikur með eldLogandi eldspýta

Það er í góðu lagi að leyfa þeim að horfa á kertaljósið undir eftirliti, en þau eiga alls ekki að kveikja á kertinu sjálf. Hér á landi má rekja marga húsbruna til kertaljóss og oft hefur það gerst þegar börnin hafa verið að kveikja sjálf á kerti þegar enginn fullorðinn er staddur á heimilinu. Dæmin hafa sýnt að fikt barna með eld getur haft verulega alvarlegar afleiðingar í för með sér.  Börn hafa verið í lífshættu vegna brunasára og einnig eru eignaspjöllin gífurleg.  Þau eiga alls ekki að ná í eldfæri, eins og eldspýtur eða kveikjara.  Til að vernda fjölskylduna fyrir eldi má gera eftirfarandi:

  • Hafið númer Neyðarlínunnar 1-1-2 við símann.Neyðarlínunúmerið 1 1 2 

  •  

  • Fáið ráðgjöf fagmanna um staðsetningu slökkvitækis, eldvarnarteppis og reykskynjara á heimilinu.  Rafhlöður í reykskynjara þarf að prófa reglulega.

  • Setjið upp og æfið flóttaáætlun ef eldur kæmi upp á heimilinu.

  • Hafið eftirlit með barninu öllum stundum.

  • Geymið eldspýtur og kveikjara í læstum hirslum þar sem barnið nær ekki til.

  • Kennið barninu að meðhöndla eldspýtur og kveikjara upp úr 8-10 ára aldri og fylgist með því kveikja kertaljós.

Eldur heillar sum börn meira en önnur.  Það er staðreynd að strákar fikta meira með eld en stelpur, enda eru brunar mun algengari innlagnarástæða hjá strákum en stelpum.  Fikt með eld getur verið margskonar t.d:

  • Barnið leikur sér með eldspýtur og kveikjara.

  • Barnið fiktar í brauðristinni, eldavélinni eða kertum.

  • Barnið kveikir í hlutum eins og leikföngum, pappír eða rusli.

  • Barnið kveikir eld eingöngu til að skemma eitthvað eða særa einhvern.

Helstu einkenni um að barnið sé að fikta með eld eru:

  • Eldspýtur og kveikjari hverfa á heimilinu.

  • Eldspýtur og kveikjari finnast innan eigna barnsins.

  • Bensínlykt finnst af fötum barnsins.

  • Brunamerki finnast á hlutum innan heimilisins, fötum barnsins eða eigum þess.

  • Barnið sýnir eldi/bruna/eldsvoða mikinn áhuga.

Á vorin hefur það verið vinsæll leikur hjá börnum að kveikja sinuelda.  Slíkt er mjög varasamt og setur bæði fólk og eignir í hættu.  Ef fikt barna með eld er ekki stöðvað strax getur leikurinn orðið enn hættulegri.  Það hefur sýnt sig að fiktið byrjar oft "sakleysislega" með því að kveikja á kertaljósi en snýst síðan um að magna eldinn sem mest t.d. með bensíni.  Brunaslys þar sem leikur barna með eld og bensín hefur farið úr böndunum eru nokkur hér á landi og bíða börnin þess aldrei bætur.  Sýnum varkárni og leyfum börnum ekki að meðhöndla eldfæri nema undir eftirliti.  

Bendið þeim sem barnið dvelur mikið hjá til þess að hafa ofangreint einnig í huga.

Ef barn lendir í slysi er nauðsynlegt að kunna skyndihjálp.  Á heimasíðu Rauða kross Íslands má finna góðar og almennar upplýsingar um skyndihjálp.  Kynntu þér þær með því að smella á myndina hér til hliðar.




Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica