Árvekni
Kokhólkur
Kokhólkur kallast það mælitæki sem notað er til að mæla stærð smáhluta sem getur valdið köfnun hjá yngri börnum.
Kokhólkinn er hægt að fá hjá Rauða Krossi Íslands.
Eins og sést á myndinni hér fyrir neðan þá samsvarar stærð kokhólksins koki barna yngri en 3ja ára.
Hvernig á að nota kokhólk?
Haldið hólknum lóðrétt í annarri hendi og setjið það smádót sem mæla á ofan í hólkinn. Hverfi smádótið ofan í hann er það hættulegt fyrir yngstu börnin. Standi smádótið uppúr hólknum eða kemst ekki ofan í hann er það of stórt til að það geti staðið í koki barna yngri en 3ja ára.
