Börn á aldrinum 3–5 ára. Að læra um öryggi.
Yfirlit
Geta barnsins
Börn á aldrinum 3-5 ára eru líklegri til þess að gleyma öllum ráðleggingum þegar þau eru annars hugar, þreytt, spennt eða æst, en hafa samt sem áður betra minni og eiga auðveldara með að einbeita sér. Þrátt fyrir þetta eiga þau enn erfitt með að skilja hvers vegna nauðsynlegt er að hafa ákveðnar reglur sem tryggja eiga öryggi þeirra.
Á þessum aldri eru börn mikið að reyna hvað þau geta og ögra sjálfum sér. Leikur þeirra einkennist enn af tilraunum og könnunum ásamt hlutverkaleikjum, eins og að vera læknir eða kennari. Þau eru mikið í ímyndunarleikjum og finnst gaman að þykjast vera t.d. dýr, teiknimyndahetjur, pabbi, mamma og fleira. Þau láta líka leikföng og aðra hversdagslega hluti verða að einhverju sem hönnuðinum, framleiðandanum eða foreldrunum hefði aldrei nokkurn tímann dottið í hug eða ímyndað sér.
Börn á þessum aldri eru sífellt önnum kafin og gífurlega sjálfstæð. Þau hafa lítinn en vaxandi skilning á öryggi sínu og fylgja betur fyrirmælum. Þau eru með líflegt ímyndunarafl og átta sig ekki alltaf á muninum á raunveruleikanum og ímynduninni. Þau herma eftir öðrum svo miklu skiptir að vera góð fyrirmynd. Þau læra það sem fyrir þeim er haft.
Um 4 ára aldur gæti barnið:
• lært að telja
• sagt sögur og farið í hlutverkaleiki
• teiknað myndir og haft gaman af að klippa og líma
• haft gaman af fjörmiklum leikjum
• verið glannalegt í leikjum sínum
• haldið athyglinni í stuttan tíma en haft lítið/ekkert tímaskyn
• hjólað á þríhjóli
• farið sjálft á klósett
Hvernig skal hátta fræðslu?
Til foreldra:
Það getur verið erfitt fyrir foreldra að muna eftir því að þó að barnið þeirra sé farið að ganga, tala og hegða sér almennt eins og barn, en ekki ung- eða smábarn, þá er það ekki endilega tilbúið fyrir meiri ábyrgð. Fjögurra ára barn er enn hvatvíst, gleymið og líkamlega og tilfinningalega vanþroskaður einstaklingur. Á meðan þau læra, án efa, meira og meira á hverjum degi, þurfa þau enn á eftirliti og ráðleggingum fullorðinna að halda.
Á hinn bóginn, þurfa foreldrar og aðrir sem gæta barna, að átta sig á því að börn á þessum aldri geta byrjað að læra grunn öryggisatriði og hvernig þau nýtast þeim. Það er undir foreldrum komið að meta getu og skilning barnsins. Það er gott að kenna börnum að takast á við einfalda hluti eins og að nota hníf til þess að smyrja brauð eða skera ávexti í bita. Eftirlit með börnum er enn nauðsynlegt en það er líka mikilvægt að leyfa þeim að gera sjálf hluti sem eru öruggir og viðeigandi.
Það að hrósa barninu fyrir góða hegðun frekar en að skamma það fyrir slæma hegðun er góð regla. Það eykur líka sjálfstraust þess og beinir athygli þess að því sem það gerir rétt og vel. Börn á þessum aldri eru áköf í að læra og þóknast þeim sem þeir líta upp til, svo það er mikilvægt að vera jákvæður fyrir því sem þau gera og nota tímann vel til þess að fræða þau og leiðbeina eins mikið og mögulegt er.
Gott er að muna eftirfarandi:
- Að ofmeta ekki getu barnsins.
- Að kenna barninu að takast á við sumar hættulegar aðstæður.
- Að hrósa barninu fyrir góða hegðun.
Foreldra til barnsins:
Þegar börn vaxa upp úr smábarnaskeiði er hæfileiki þeirra til að læra enn mikill. Þessi aldur er hentugur til þess að byrja að útskýra fyrir barninu hvers vegna sumir hlutir eru hættulegir, í framhaldi af því að segja “ekki koma við” eða “ekki fara þarna”. Við þetta getur barninu fundist það vera orðið ”fullorðið” og meiri líkur eru á að það bregðist jákvætt við. Það eru þó enn takmörk á skilningi þess og getu, svo haga verður fræðslu til þess eftir því og endurtaka hana reglulega.
Með því að kenna barninu almennar öryggisreglur er minni þeirra styrkt, ásamt því að barninu getur fundist það skemmtilegt. Foreldrar verða samt sem áður að gæta sín á því að ofmeta ekki getu barnsins. Á þessum tíma er því hjálp og leiðbeiningar fullorðinna enn mikilvægar og á meðan öðlast barnið sjálfstraust og lærir góðar venjur.
Þegar barnið kemst út úr “sjálfmiðaða” tímabilinu, fer það smátt og smátt að skilja að hegðun þess getur haft afleiðingar fyrir aðra. Það er þó enn of ungt til þess að bera ábyrgð á öðrum en hægt er að kenna því að aðrir geti meiðst vegna einhvers sem það gerir, eins og t.d. ef það skilur eftir dót í stiganum eða réttir litlu barni smáhlut.
Gott er að muna eftirfarandi:
- Að vera góð fyrirmynd og útskýra hvað verið er að gera.
- Að útskýra fyrir barninu hvers vegna sumir hlutir eða gjörðir eru hættulegar.
- Að gera fræðslu um öryggi að skemmtilegri og jákvæðri reynslu.
- Að kenna barninu að hegðun þeirra og gjörðir geti haft áhrif á aðra.
- Að eftirlit er enn besta leiðin til þess að fyrirbyggja slys.
Algeng slys hjá þessum aldurshópi og fyrirbygging þeirra
Fall
Niður stiga
Öryggishlið duga skammt fyrir þennan aldurshóp. Foreldrar verða því að kenna börnunum að fara varlega upp og niður stiga.
Stigar ættu ekki að vera leiksvæði barna og gæta verður þess að í stiganum séu ekki skilin eftir leikföng eða annað sem hætta er á að detta um.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Kenna á barninu að fara upp og niður stiga og brýna fyrir því að halda sér alltaf í handriðið á meðan.
- Handrið ættu að vera við stigann.
- Stiginn má ekki vera háll, stamt gólfefni er öruggara.
- Stigann á ekki að nota sem leiksvæði.
- Brýnið fyrir barninu að skilja leikföng og aðra hluti ekki eftir í stiganum, slíkt getur aukið hættuna á falli barna og fullorðinna.
Út um glugga og niður af svölum
Á þessum aldri hafa börn mikið ímyndunarafl og óraunhæfar væntingar um getu sína. Þau horfa t.d á Superman í sjónvarpinu fljúga út um glugga og trúa því að í réttum búningi geti þau gert hið sama. Til að fyrirbyggja slíka leiki þarf að setja öryggislæsingar á glugga sem leyfa einungis 10 cm. opnun sem hindrar að barnið geti dottið út um gluggann.
Svalir geta verið varasamar fyrir lítil börn. Handrið þeirra ættu að vera ???????? Dæmi eru um alvarleg slys á börnum sem dottið hafa niður af svölum. Varasamt er að geyma hluti, s.s. stóla og borð úti á svölum sem barnið getur stigið á og þannig komist yfir handriðið.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Á gluggum heimilisins ættu að vera öryggislæsingar sem tryggja að glugginn opnist ekki meira en 10 cm.
- Setjið ekki rúm, stóla eða borð undir glugga í barna- eða leikherbergjum.
- Talið við barnið um hætturnar sem fylgja því að leika sér við glugga.
- Aldrei ætti að skilja ung börn eftir án eftirlits úti á svölum.
- Varasamt er að geyma t.d. borð og stóla úti á svölum sem barnið gæti notað til að komast yfir handriðið.
Niður af leiktækjum
Leiktæki eiga að uppfylla íslenska staðla sem tryggja það t.d. að bil milli rimla sé öruggt og að allar festingar séu réttar. Einnig má ekkert vera á leiktækinu sem t.d. reimar eða hettur geta fest í eða krækst í. En þó að leiktækið sé öruggt og uppfylli staðla, getur það verið hættulegt ef það er ekki notað rétt. Lítil börn sem falla úr háu leiktæki geta slasast illa.
Það er ómögulegt og óæskilegt að fjarlæga allar hættur leiktækja, en með því að tryggja að börnin noti einungis leiktæki sem henta aldri þeirra, stærð og getu, helst með öryggisundirlagi og eftirliti, er hægt að minnka hættuna á meiðslum.
Þó að hlaðrúm (kojur) flokkist ekki sem leiktæki nota börn þau oft sem leiksvæði. Flest alvarleg slys í kojum verða þegar lítil börn eru að leika sér í efra rúminu og detta á höfuðið. Í dag er einnig hægt að fá hlaðrúm með áföstum leiktækjum. Slík leiktæki geta verið varasöm fyrir ung börn. Ekki er æskilegt að láta barn yngra en 6 ára sofa eitt í efri koju.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Verið viss um að leiktækin henti aldri og þroska barnsins.
- Veljið lág leiktæki með öryggis undirlagi
- Veljið leikvelli þar sem öryggisundirlag er undir og í kringum leiktæki.
- Sýnið börnum hvernig nota á leiktækin rétt en gerið ráð fyrir að þau noti þau á annan hátt.
- Bannið leiki í hlaðrúmum.
Niður af trampólíni
Trampólín hafa verið vinsæl leiktæki, helst á leikskólum og í íþróttahúsum. Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að trampólín séu sett upp daglangt vegna ýmiskonar uppákoma í bæjum landsins. Einnig hefur það aukist gríðarlega að slík leiktæki séu sett upp í einkagörðum.
Trampólín geta gagnast vel í þjálfun á jafnvægi og samhæfingu hreyfinga hjá börnum. Þrátt fyrir það eru börn í hættu á að meiða sig á þeim. Þau geta hlotið alvarlega áverka eins og beinbrot, áverka á mænu eða innvortismeiðsl.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Trampólínið þarf að henta aldri og stærð barnsins.
- Mjög mikilvægt er að fara eftir leiðbeiningum frá framleiðenda um samsetningu, notkun og viðhald trampólínsins.
- Foreldrar þurfa að setja reglur um notkun þess og brýna fyrir börnunum að fara eftir þeim.
- Einungis eitt barn má hoppa á trampólíninu í einu.
- Fara þarf reglulega yfir trampólínið eftir að það hefur verið sett upp.
Innkaupakerrur, eigum við að hafa eitthvað um þær hér?
Köfnun
Plastpokar valda mestri hættu á köfnun barna á þessum aldri. Það gerist samt sem betur fer afar sjaldan. Það þarf því að gæta að því að geyma ekki leikföng í plastpoka né láta barn hafa plastpoka til þess að geyma hluti í. Fjarlægja þarf plastumbúðir úr umhverfi barnsins.
Blöðrur, út gúmmíi, eru sérstaklega varasamar því ef stykki úr þeim lendir í munni barns er hætt við að það loki fyrir öndunarveginn. Aldrei ætti að láta barn hafa óuppblásna blöðru. Ef blaðra springur er mikilvægt að gæta þess að tína upp alla hluta hennar til að koma í veg fyrir að þeir lendi í munni barns.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Fjarlægja ætti plastumbúðir og poka af öllu tagi og geyma þar sem barið nær ekki til.
- Ekki ætti að gefa barni óuppblásna blöðru. Mikilvægt er að tína saman alla hluta hennar ef hún springur.
Aðskotahlutur í hálsi
Almennt eru börn sem orðin eru 3ja ára að mestu hætt að stinga öllu í munninn. Hins vegar þekkja foreldrar börnin sín best og ættu því að halda smáhlutum frá börnunum enn um sinn ef þau gera það enn. Meiri hætta er á að börn á þessum aldri kafni vegna fæðu eða sælgætis. Mikilvægt er að brýna fyrir börnum að sitja kyrr á meðan þau borða og þau ættu ekki að vera án eftirlits á meðan. Fæða sem er hörð og lítil, t.d. gulrætur, sælgæti, hnetur og ísmolar, getur skapað hættu og ætti því að forðast hana.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Ekki ætti að skilja barnið eftir án eftirlits á meðan það borðar.
- Brýna þarf fyrir barninu að sitja kyrrt á meðan það borðar. Ekki ætti að leyfa því að hlaupa um með mat í munninum.
- Gæta verður að því að smáhlutir séu ekki þar sem barnið nær til. Gott er að nota kokhólk til að mæla stærð smáhluta.
- Hnetur og annað sem getur auðveldlega staðið í þeim ætti ekki að gefa smábörnum.
Eitranir
Þrátt fyrir að vita betur hvað er ætilegt og hvað ekki, eru börn yngri en 5 ára enn í hættu á að verða fyrir eitrunum. Þau geta auðveldlega t.d. ruglast á lyfjum sem líkjast sælgæti. Geta barnanna til þess að “brjóta sér leið” og “komast að” því sem þau ætla sér er meiri. Foreldrar ættu því að finna einn góðan stað undir öll hættuleg efni, s.s. lyf, þar með talin vítamín og getnaðarvarnapillur, áfengi, hreinsiefni og tóbak, helst í herbergi þar sem umgengni er mikil svo minni hætta sé á að börnin séu lengi ein þar.
Hafa ber í huga að á þessum aldri ná flest börn að opna öryggislæsingar á lyfjaglösum og hreinsiefnaflöskum, svo að það eitt og sér er ekki öruggt fyrir barnið.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Geyma á efni og lyf í læstum hirslum og á stað þar sem börn ná ekki til.
- Geyma á öll efni í upphaflegum umbúðum til að fyrirbyggja misskilning.
- Ekki ætti að geyma lyf í handtöskum eða í náttborðinu.
- Brýnið fyrir börnunum að borða ekki ber eða annað sem þau finna utanhúss nema eftir að hafa sýnt fullorðnum einstaklingi það.
- Fara þarf yfir plöntur á heimilinu og í garðinum.
- Hafið símanúmer Neyðarlínunnar 112 og Eitrunarmiðstöðvarinnar við öll símtæki á heimilinu. Þar er svarað í símann allan sólarhringinn.
Hengingar
Enn er smávægileg hætta á að börn á þessum aldri hengist vegna fatnaðar, aðallega þegar þau festast í einhverju t.d. leiktækjum eða grindverki. Einnig getur hætta stafað af þvottasnúrum, sérstaklega snúningssnúrum, gardínusnúrum og öðrum snúrum og böndum.
Víða í Evrópu hafa verið settar reglur sem minnka hættu á slysum vegna barnafatnaðar. Ekki eru slíkar reglur í gildi hér á landi, en einhverjir framleiðendur barnafatnaðar hérlendis hafi tekið mið af þeim reglum sem eru í gildi í Evrópu. Mikilvægt er að upplýsa almenning um mögulegar hættur, því ekki er óalgengt að börn séu í heimasaumuðum og prjónuðum fötum. Hætta á hengingum er aðallega vegna reima í hettum og borða í hálsmálum.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Fylgjast þarf vel með barninu þegar það er í klifurleikjum.
- Gæta þarf að því að hálsmál, hettur eða reimar festist ekki í leiktækjum.
- Gæta þarf að því að barnið leiki sér ekki með snúrur, bönd og hangandi lykkjur.
- Föt barnsins ættu ekki að þrengja að hálsi barnsins. Fjarlægja ætti reimar og bönd úr fatnaði.
- Stórar hettur, flaksandi treflar og hálsklútar geta valdið hengingum.
- Aðgæta þarf þvottasnúrur þegar þær eru ekki í notkun.
Brunaslys
Börnum á þessum aldri finnst gaman að hjálpa til og að herma eftir fullorðnum. Það getur reynst hættulegt t.d. þegar að því kemur að halda á heitum mat eða vökva, nota bakaraofninn, kveikjara o.s.frv. Flest börn skilja nú þegar sagt er við þau “heitt, ekki koma við”, en það vill gleymast auðveldlega. Foreldrar og aðrir sem gæta barnanna verða að fara eftir eigin dómgreind og meta hvað þeir telja að barnið geti gert, en almennt séð er öruggast að láta börn undir fimm ára aldri ekki gera neitt sem felur í sér heita hluti eða vökva.
Vegna aukins fínhreyfþroska geta börn á þessum aldri snúið frá krönum og snúið hnöppum á bakaraofni og eldavél. Foreldrar verða að vera meðvitaðir um þetta og gera viðeigandi ráðstafanir vegna þess.
Vegna sólar
Nýlegar rannsóknir sýna að börn sem sólbrenna eru líklegri til að fá húðkrabbamein síðar á lífsleiðinni. Sólbruni er bæði sársaukafullur og hættulegur börnum. Íslendingum hættir til að vanmeta styrk sólarinnar og gera því lítið til þess að verja húðina. Gleymið ekki að hægt er að sólbrenna þó skýjað sé í veðri. Á ung- og smábörn þarf að nota mun meiri sólarvörn en á þá sem eldri eru. Mikilvægt er að brýna fyrir foreldrum að láta ekki ung börn vera úti í sólinni yfir hábjartan daginn.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Ekki er mælt með því að hita drykki og mat fyrir börn í örbylgjuofni.
- Þegar setið er með lítið barn ætti ekki að drekka heita drykki á meðan. Lítil hreyfing barnsins eða jafnvel heimilisdýrs getur valdið því að heitur drykkurinn slettist á húð barnsins. Gæta þarf þess að skilja ekki heita drykki og vökva þar sem barnið nær til.
- Mjög mikilvægt er að kanna hitastig baðvatnsins áður en barnið er sett ofan í það.
- Hitastýrð blöndunartæki eru æskilegasti kosturinn.
- Geyma ætti straujárnið þar sem barnið nær ekki til og forðist að strauja með barnið nálægt.
- Æskilegt er að stytta rafmagnssnúrur eða nota snúrustytti t.d. á hraðsuðuketilinn. Gæta þarf þess að lampar og lampasnúrur séu ekki þar sem barnið nær til.
- Öll rafmagnstæki geta verið barninu hættuleg.
- Þegar verið er að nota eldavélina ætti að nota aftari hellurnar ef hægt er. Einnig þarf að gæta að því að snúa handföngum og sköftum á pottunum að veggnum. Til eru góðar öryggishlífar á eldavélar sem tryggja að barnið komist ekki að hellunum. Einnig er æskilegt að setja hlífar á rofana á eldavélinni.
- Geymið kveikjara og eldspýtur þar sem börn ná ekki til.
- Ekki er mælt með því að hita drykki og mat fyrir börn í örbylgjuofni. Ef matur er hitaður þarf að hræra vel í honum og láta standa í stutta stund áður. Sama á við um drykki.
- Drekkið aldrei heita drykki með barn í fanginu.
- Þegar heitt er í veðri ætti barnið að vera í léttum og ljósum fatnaði sem hylur mikinn hluta líkamans. Barnið ætti einnig að vera með sólhatt sem skyggir á andlit þess og háls.
- Nota á sólarvörn sérstaklega ætlaða ungum börnum. Húð barna er þynnri og viðkvæmari en húð fullorðinna.
- Yngstu börnin ættu ekki að vera úti í sólinni þegar hún er sem hæst á lofti.
Eldur á heimilinu
Eldsvoðar á heimilum fólks eru alltof tíðir og oft hefur litlu mátt muna að heimilisfólk hafi komist heilu og höldnu út. Flest dauðaslys í eldsvoðum verða vegna reykeitrunar, frekar en brunasára. Ung börn hafa engan möguleika á að komast sjálf út og eru því í meiri hættu en aðrir.
Til eru almennar leiðbeiningar um eldvarnir í heimahúsum, sem allir ættu að kynna sér. Þessar leiðbeiningar eiga við um alla aldurshópa, börn sem fullorðna.
(? um að vísa á leiðbeingarnar á heimasíðu Árvekni eða hjá Slökkviliði höfuðborgarinnar)
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Reykskynjarar ættu að vera á öllum heimilum. Æskilegt er að fá ráðleggingar hjá fagmönnum um staðsetningu þeirra. Mikilvægt er að skipta um rafhlöður í þeim reglulega, ekki sjaldnar en einu sinni á ári. Það getur verið sniðugt að miða alltaf við einhvern ákveðinn tíma t.d. jólin, páskana eða afmæli einhvers.
- Slökkvitæki og eldvarnarteppi ættu einnig að vera á öllum heimilum. Rétt er að fá ráðleggingar hjá fagmönnum um rétta staðsetningu.
- Númer Neyðarlínunnar 1-1-2 ætti að vera við öll símtæki á heimilinu.
- Mikilvægt er að kunna rétt viðbrögð við eldsvoða því er mikilvægt að kynna sér almennar leiðbeiningar um eldvarnir.
- Ráðlegt er að setja upp flóttaáætlun. Ekki ætti að geyma það þangað til það er orðið of seint.
- Ganga þarf úr skugga um að ástand rafmagnsmála á heimilinu sé gott og standist lög um rafmagnsöryggi. Bilaðar rafmagnssnúrur og innstungur ætti að laga strax.
- Setjið öryggislæsingar í innstungur ef innstungur eru eldri en 8 ára.
- Eldspýtur og kveikjara skal geyma þar sem börn ná ekki til.
- Aldrei skal skilja eftir logandi kerti í mannlausum herbergjum.
- Djúpsteikingarpottar hafa valdið mörgum húsbrunum og eru sérstaklega varasamir.
- Aldrei skal líta af pottum og pönnum meðan eldavél er í gangi.
- Ef arinn er á heimilinu, setjið þá öryggishlið fyrir hann.
Rafmagnsbrunar
Rafmagnsbrunar og raflost eru ekki algeng slys hjá börnum á Íslandi. Í þeim tilfellum þar sem slík slys verða er það vegna þess að rafmagnsnúrur eða innstungur eru ekki í lagi eða að barni tekst að stinga hlutum inn í innstungur. Það er afar mikilvægt að allar raflagnir og innstungur séu í lagi. Í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi eiga raflagnir að vera jarðtengdar samkvæmt lögum. Lekastraumsrofi ásamt jarðtengingu raflagna er öruggasta vörnin gegn raflosti.
Rafmagnssnúrur eiga ekki að hanga niður á gólf eða liggja eftir gólfinu þar sem barnið getur náð til þeirra. Rafmagnssnúrur sem eru farnar að trosna þarf að endurnýja.
Allar nýrri innstungur eru með innbyggðar öryggislæsingar sem draga úr hættunni á að börn geti stungið einhverju inn í þær. Eldri innstungur þarf að verja með þar til gerðum öryggislæsingum.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Ganga þarf úr skugga um að allar rafmagnssnúrur og innstungur séu í lagi.
- Setja ætti öryggislæsingar í allar innstungur ef þær eru ekki innbyggðar.
- Æskilegt er að fjarlægja allar ónauðsynlegar rafmagnssnúrur.
- Rafmagnssnúrur ættu ekki liggja eftir gólfinu eða hanga niður.
Drukknun
Á Ísland er mikið um vatn í umhverfi barna. Má nefna sjó, vötn, ár, mýrlendi, sundlaugar, setlaugar og tjarnir. Setlaugar og tjarnir í görðum, oft hjá nágrönnum, vinum og ættingjum, eiga einmitt sök á nokkrum drukknunum og nærdrukknunum barna hér á landi.
Þó að hætta á drukknun í baði eða í litlu vatni sé minni, þá eru börn á þessum aldri enn í hættu nálægt vatni. Þau eru ef til vill öruggari sjálf í vatni, en hætturnar eru enn til staðar. Tjarnir í görðum og setlaugar eru enn börnum hættulegar, eins og allir leikir nálægt vatni s.s. lækjum og skurðum, jafnvel þrátt fyrir eftirlit fullorðins einstaklings.
Um 4ra ára aldur er í raun í lagi að fara að venja þau á að vera ein í baði í stutta stund, svo framalega sem barnið getur ekki lokað og læst hurðinni sjálft og að fullorðinn einstaklingur sé í kallfæri.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Byrja ætti sundkennslu á þessum aldri.
- Fylgjast þarf vel með börnum þar sem þau eru í vaðlaugum eða við leik nálægt vatni.
- Girða þarf af setlaugar og tjarnir.
- Læst öryggislok á alltaf að vera á setlaugum þegar þær eru ekki í notkun.
- Öruggasti staðurinn til þess að synda eru almennings sundlaugar.
- Ekki má treysta eingöngu á sundkennslubúnað, s.s. armakúta eða sundjakka.
Skurðir og mar
Nú er hægt að fara að kenna barninu hvernig á að nota einstaka hnífa og skæri á öruggan hátt. Þannig er hægt að leyfa þeim að nota smjörhnífa, sem ekki eru oddbeittir og að nota barnaskæri þegar þau föndra. Fínhreyfingar þeirra hafa þroskast mikið og segja má að með því að kenna þeim snemma að nota hnífa og skæri rétt er verið að ýta undir góða þjálfun.
Allir beittir hlutir, líka rakvélar og naglaþjalir, ætti enn að geyma þar sem börn ná ekki til. Plast hnífar geta líka verið ansi beittir, sérstaklega ef þeir brotna. Börn hafa einnig hlotið alvarleg sár á fingrum eftir að hafa skorið sig á álgosdósum.
Allt gler sem er í hæð barna ætti að vera öryggisgler eða í það minnsta vera með öryggisfilmu, en ærslafullir leikir barna geta endað með því að börn detti á hurðir og glugga.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
• Setja þarf öryggislæsingar á skápa og skúffur.
• Geyma á hættulega hluti, eins og hnífa, skæri og aðra þunga og beitta hluti, þar sem barnið nær ekki til.
• Kennið barninu að nota smjörhnífa og þar til gerð barnaskæri.
• Setja ætti öryggisgler eða öryggisfilmu á gler í hurðum, borðum og fleiru sem er í hæð barnsins.
• Æskilegt er að setja fingravini á hurðir til að koma í veg fyrir klemmuslys.
Þegar farið er með barnið út
Í bíl - HS og MS ætla að klára þennan kafla
Það er mikilvægt að nota viðurkenndan öryggisbúnað (ECE R4403, CMVSS eða FMVSS) fyrir barnið í bílinn. Velja þarf búnað sem hentar aldri og þyngd barnsins. Mjög mikilvægt er að festa bílstóllinn rétt í bílinn og að barnið sé rétt fest í hann. Einnig þarf að fylgja ávallt þeim leiðbeiningum sem fylgdu bílstólnum. Börn þurfa að hafa náð 15 kg þyngd til þess að nota bílpúða.
Ekki er æskilegt að skilja börn á þessum aldri eftir ein í bílnum jafnvel þó aðeins sé um stutta stund að ræða. Aukinn líkamsþroski ásamt forvitni og miklu ímyndunarafli þeirra getur leitt til slysa
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Ávallt skal nota viðurkenndan (ECE R4403, CMVSS og FMVSS) öryggisbúnað fyrir barnið í bílinn. Aldrei nokkurn tíman má ferðast með barnið án viðeigandi öryggisbúnaðar.
- Veljið búnað sem hentar aldri og þyngd barnsins.
- Gæta verður þess að festa alltaf bílstólinn í bílinn og barnið í stólinn samkvæmt þeim leiðbeiningum sem fylgja honum.
- Setjið aldrei bílstól í framsæti bíls þar sem tengdur er öryggispúði.
- Skiljið börn ekki eftir ein í bíl.
Gangandi
Börn á þessum aldri ættu ekki að vera á gangi við götur nema í fylgd með fullorðnum. Þau hafa einfaldlega ekki skilning á eða reynslu til þess að takast á við umferðina. Foreldrar þurfa að vera góð fyrirmynd og fara yfir umferðarreglurnar með börnunum, en mega alls ekki treysta því að þau skilji þær alveg og fari eftir þeim
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Börn á þessum aldri ættu ekki að vera ein úti án eftirlits fullorðins einstaklings.
- Þegar gengið er úti nálægt götu ætti að leiða barnið.
- Barnið ætti að ganga fjær gangstéttarbrúninni.
- Kenna þarf barninu umferðarreglurnar á meðan gengið er úti. Það þarf að kenna því að stoppa, horfa, hlusta og hugsa áður en og á meðan það fer yfir götu.
- Hinir fullorðnu verða að fara varlega og sýna gott fordæmi. Þeir eiga að vera góð fyrirmynd.
- Ráðlagt er að útbúa afgirt leiksvæði fjarri götu.
Á hjóli - HLS og MS bæta við
Mörg börn byrja á þessum aldri að hjóla á þríhjólum og jafnvel sum á tvíhjóli. Þau ættu aldrei að fá að hjóla við götur t.d. vegna þess að þau kunna ekki að fara yfir þær.
Allir hjólreiðamenn, óháð aldri þeirra, ættu að vera með hjólreiðahjálm. Samkvæmt umferðarlögum er börnum yngri en 15 ára skylt að vera með hjólreiðahjálm við hjólreiðar. Foreldrar ættu að vera fyrirmynd barnanna og nota þá líka.
Miðað við almennan þroska og getu barna er barnið fyrst tilbúið til að hjóla úti í umferðinni við 10 til 12 ára aldur. Fram að þeim aldri er fjarlægðarskynið ekki fullþroskað þannig að barninu finnst hlutirnir vera lengra í burtu en þeir í rauninni eru. Börn á þessum aldri hafa heldur ekki eins góða hliðarsýn og þeir sem eldri eru. Heyrn barna yngri en 8 ára er ekki fullþroskuð og geta þau því ekki greint úr hvaða átt hljóð kemur. Við 10 ára aldur hafa þau náð fullum jafnvægisþroska. Það er því fyrst við 10 til 12 ára aldur sem barnið getur meira en bara stýrt hjólinu, haldið jafnvæginu og hemlað. Þá fyrst hafa þau þroska til að meðtaka allt það sem fram fer í kringum þau þar sem þau hjóla.
Áður en barninu er leyft að hjóla í umferðinni er mikilvægt að fara vel yfir umferðareglur hjólreiðamanna (39. og 40. grein). Samkvæmt þessum umferðarreglum má barn yngra en 7 ára ekki hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti manns sem náð hefur 15 ára aldri.
Hvað skal gera til fyrirbyggingar?
- Allir hjólreiðamenn, óháð aldri þeirra, ættu að vera með hjólreiðahjálm.
- Barnið ætti ekki að hjóla við götur.
- Barnið þarf að vera undir eftirliti þegar það hjólar. Það ætti að hjóla á hjólastíg eða á lokuðu leiksvæði.
