Sími : 5 800 900

Árvekni

Börn á aldrinum 3–5 ára. Að læra um öryggi. - 13.12.2005

Börn á þessum aldri eiga sífellt auðveldara með samhæfingu hreyfinga og fínhreyfingar þeirra verða betri. Þau skilja nú betur afleiðingar gjörða sinna. Lesa meira
 

Smábörn (u.þ.b. 1-3 ára). “Toddling into trouble”: Þar sem talað er um smábörn er átt við börn á aldrinum 1 til 3 ára. - 13.12.2005

Smábörn eru litlir forvitnir einstaklingar sem hafa ótrúlega mikla orku samhliða litlum skilningi á afleiðingum gjörða sinna. Margir foreldrar upplifa mikla hræðslu á þessu aldursbili vegna þess að börnin virðast sífellt vera að koma sér í hættulegar aðstæður. Lesa meira
 

Frá því að barnið byrjar að velta sér/skríða og þar til það fer að ganga (u.þ.b. 6 til 15 mánaða). Nú er barnið loks komið á ferð. - 13.12.2005

Þegar börn hafa náð 6 mánaða aldri geta þau betur stjórnað hreyfingum sínum. Þannig geta þau með meðvituðum hreyfingum náð í það sem þau langar til og komist þangað sem þau ætla sér. Einnig verða fínhreyfingar þeirra sífellt betri og þau eiga auðveldar með að tína upp smáhluti. Lesa meira
 

Frá fæðingu þar til barnið fer að skríða (u.þ.b. 0-6 mánaða). Verndun barnsins og fyrirbygging slysa. - 13.12.2005

Fyrsta ár barnsins einkennist af hröðum vexti og þroska þess. Það einkennist líka af miklum breytingum í lífi foreldranna sem þurfa sífellt að vera til taks fyrir litla einstaklinginn. Lesa meira
 

Ýmiskonar búnaður - 13.12.2005

Hér er að finna umfjöllun um ýmiskonar búnað, s.s. brjóstagjafapúða, beisli, hjalstöð, kerrupoka, svefnpoka, gæru, burðarsæti og burðarpoka. Lesa meira
 

Vegna leiks - 13.12.2005

Til er ýmiskonar búnaður sem hægt er að nota fyrir barnið jafnvel á fyrstu vikunum til að stytta því stundir. Þessi búnaður getur verið þægilegur fyrir foreldra ef hann er rétt notaður. Lesa meira
 

Vegna næringar - 13.12.2005

Þegar barnið fer að borða fasta fæðu þarf að huga að ýmsu þegar valin eru mataráhöld fyrir það. Lesa meira
 

Snuð og pelar - 13.12.2005

Góð umhirða snuða og pela skiptir miklu máli. Lesa meira
 

Vegna hreinlætis - 13.12.2005

Hér er fjallað um búnað sem snertir hreinlæti barnsins, s.s. kopp, barnasetu, skammel og tannbursta. Lesa meira
 

Barnahúsgögn - 13.12.2005

Að ýmsu þarf að huga þegar keypt eru húsgögn fyrir börn yngri en 6 ára. Lesa meira
 

Skartgripir og hárskraut barna - 12.12.2005

Algengt er að ung börn fái skartgripi að gjöf, t.d. í skírnargjöf. Oftast er um að ræða hálsmen og armbönd en síðustu ár hafa eyrnalokkar og hringir einnig notið mikilla vinsælda. Lesa meira
 

Fatnaður barna - 12.12.2005

Það kemur sjálfsagt mörgum á óvart að ýmsar hættur getur falist í fatnaði barna. Lesa meira
 

Fylgihlutir hjóla - 12.12.2005

Í dag er til ýmis aukabúnaður sem auðveldar foreldrum að hjóla með börnum sínum. Lesa meira
 

Hjól - 12.12.2005

Sjálfsagt velta margir því fyrir sér hvenær sé tímabært að gefa barninu sínu fyrsta hjólið. Lesa meira
 

Matarstólar - 12.12.2005

Á hverju ári verða þónokkuð mörg slys vegna matarstóla. Helst eru það föll sem börnin verða fyrir. Lesa meira
 

Fylgihlutir barnavagna/kerra - 12.12.2005

Þegar stutt er á milli barna getur verið kostur að geta hvílt litla og þreytta fætur eldra barnsins. Á suma barnavagna og kerrur er hægt að festa aukasæti/systkinasæti eða standpall/systkinapall. Lesa meira
 

Barnavagnar og kerrur - 12.12.2005

Hér á landi er mikið úrval af barnavögnum og kerrum í verslunum og þarf því að vanda valið vel. Barnavagnar og barnakerrur eru til í mörgum stærðum og gerðum. Lesa meira
 

Baðbúnaður fyrir börn - 12.12.2005

Á markaði hér á landi er ýmiskonar búnaður til að auðvelda foreldrum böðun barna sinna. Algengust eru sjálfsagt sambyggð skipti- og baðborð (sjá hér) en einnig eru til laus barnabaðker, barnabaðker á fæti og svokallaðar baðbötur. Lesa meira
 

Skipti- og/eða baðborð - 12.12.2005

Á hverju ári falla allmörg ung- og smábörn niður af skiptiborðum. Ástæðan er yfirleitt sú að sá sem er að skipta á barninu lítur af því eitt augnablik til þess að teygja sig í eitthvað eða jafnvel til þess að svara í símann. Það sem komið hefur flestum á óvart er hversu fljótt þetta gerist. Þetta gerist jafnvel áður en barnið byrjar að velta sér. Lesa meira
 

Fylgihlutir rúma: - 9.12.2005

Það getur haft mikið að segja hvernig búið er um rúm barnsins. Lesa meira
 

Rúm fyrir börn - 9.12.2005

Það að velja rúm fyrir barnið sitt er ein af mörgum stórum ákvörðunum sem foreldrar þurfa að taka. Þar sem ung- og smábörn sofa mikið fyrstu mánuðina og árin þurfa þeir að vera vissir um að rúmið sé öruggt og að vel fari um barnið og því þarf að vanda valið vel. Lesa meira
 

Öryggi barna á leið í skólann - 5.9.2005

Strax í byrjun skólagöngu er mikilvægt er að huga að öryggi barnsins á leið í skólann. Athuga þarf á hvað hátt barnið ferðast í skólann. Búi barnið í næsta nágrenni skólans og þarf ekki að fara yfir hættulegar umferðagötur þá ætti barnið að ganga í skólann. Sé barninu ekið þarf að ýmsu huga, s.s. öryggi barnsins í bílnum og fleiru. Lesa meira
 

Hitaveituvatnið getur brennt - 27.6.2005

Á nokkuð mörgum stöðum á landsbyggðinni getur reynst erfitt að stilla hitann á baðvatninu. Nú þegar fólk er mikið að ferðast er mikilvægt er að foreldrar hafi þetta í huga, því árlega brennast mörg börn á heitu vatni þar sem fjölskyldan dvelur í sumarleyfi.

Lesa meira

 

Börn í innkaupakerrum - 22.3.2005

Flestir foreldrar þurfa að taka börnin með sér þegar keypt er inn til heimilisins og þá kemur sér vel að geta sett barnið í sæti á innkaupakerrunni. En þá þarf að hafa hugfast að aldrei má skilja barnið eitt eftir. Fyrir lítið barn að detta úr innkaupakerru niður á steingólf samsvarar því að fullorðinn detti ofan að bílskúr niður á steypta stétt. Sem skýrir hversu alvarlegir áverkanir geta orðið við fall úr innkaupkerru. Lesa meira
 

Leikur með eld - 30.4.2004

Hrifning barna á eldi byrjar snemma. Börnum finnst t.d. gaman að horfa á kertaljós og fá að blása til að slökkva ljósið. Lesa meira
 

Hjólreiðahjálmar og annar öryggisbúnaður - 20.4.2004

Í umferðarlögum segir að börn yngri en 15 ára sé skylt að nota hjólreiðahjálm við hjólreiðar. Lesa meira
 

Heimaslys - 1.4.2004

Dögg Hauksdóttir, læknanemi á 4. ári gerði rannsókn á heimaslysum vorið 2002. Leiðbeinendur hennar voru Jón Baldursson sérfræðingum í bráðalækningum og Brynjólfur Mogensen bæklunarlæknir. Hún hefur gefið okkur leyfi til að birta innihald rannsóknarinnar hér á heimasíðu okkar og kunnum við henni bestu þakkir fyrir.

Lesa meira
 

Kokhólkur - 1.4.2004

Kokhólkur kallast það mælitæki sem notað er til að mæla stærð smáhluta sem getur valdið köfnun hjá yngri börnum. Lesa meira
 

Ársskýrsla Árvekni 1999 - 22.3.2004

Árvekni, táknmyndRíkisstjórn Íslands samþykkti þann 8. október 1997 tillögu Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, um þriggja ára átaksverkefni til fækkunar slysa á börnum og unglingum. Aðdraganda þessa verkefnis má rekja til samvinnu Þórhildar Líndal, umboðsmanns barna, og Herdísar L. Storgaard, barnaslysavarnafulltrúa Slysavarnafélags Íslands. Í samvinnu við lækna á barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur voru árið 1997 þróaðar hugmyndir umboðsmanns um sérstakt átak í slysavörnum barna og unglinga. Tillögur um slíkt átaksverkefni voru í júlí 1997 kynntar heilbrigðismálaráðherra. Eftir samþykkt ríkisstjórnar var verkefnisstjórn skipuð í apríl 1998 og hófst undirbúningur og skipulagning starfsins í framhaldi af því. Verkefnisstjórn er skipuð fulltrúum sex ráðuneyta og einum fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Síðla árs 1998 var Herdís L. Storgaard ráðin framkvæmdastjóri verkefnisins og hóf hún störf 1. desember það ár. Talið var rétt að finna verkefninu sérstakt nafn, m.a. til að auðvelda kynningu þess, og varð nafnið Árvekni fyrir valinu.

Lesa meira

 

Um upphaf og hlutverk Árvekni - 22.3.2004

Ríkisstjórn Íslands samþykkti þann 8. október 1997 tillögu Ingibjargar Pálmadóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, um þriggja ára átaksverkefni til fækkunar slysa á börnum og unglingum. Lesa meira
 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica