Sími : 5 800 900
Áfengi

Áfengi skaðlegra konum en körlum?

7.3.2005

Áhrif áfengis á kynin eru ekki eins og þá skiptir stærð viðkomandi einnig máli hvað þetta varðar.

Áfengi hefur í áraraðir verið notað eða misnotað í ýmsum tilgangi m.a. til lækninga en þó mest til að komast í vímukennt ástand. Ýmsar aukaverkanir fylgja neyslu áfengis bæði líkamlegar og andlegar og þá eru ótaldir þeir alvarlegu sjúkdómar sem rekja má til langvarandi áfengisneyslu, þ.á.m. alvarlegar og jafnvel banvænar skemmdir á lifrinni, meltingartruflanir, ýmsir geðrænir kvillar og aukin hætta krabbameini og sérstakleg á brjóstakrabbameini hjá konum sem drekka óhóflega. Áfengi leysist upp í meltingarveginum og um það bil 10-20% strax í maganum. Matur hefur því áhrif á hversu auðveldlega áfengi kemst í æðakerfið og út til líffæranna. Í meltingarveginum eru nokkrir efnahvatar sem brjóta niður áfengi áður en það kemst út í blóðið. Lifrin gegnir svo því hlutverki að losa líkamann við áfengi með því að umbreyta því í önnur efni. Starfssemi lifrarinnar er stöðug og sami hraði helst á efnaskiptunum, jafnvel þótt áfengi í blóðinu aukist. Lifrin brýtur því alltaf niður sama magn af áfengi - sem er um það bil einn áfengissjúss á klukkustund – og enginn utanaðkomandi áhrif, s.s. göngur, kaffidrykkja, sturta, hraða starfsemi lifrarinnar. Lifrin losar líkamann við um 90% af áfenginu á þennan hátt og einungis 5-10% af áfenginu er skilað óbreyttu úr líkamanum gegnum öndun, þvaglát og svita.

 

      

 
  • Hjá konum sem drekka áfengi óhóflega er aukin hætta á brjóstakrabbameini.

  • Kona sem drekkur sama magn af áfengi og karl verður drukknari en hann.

  • Mikil áfengisneysla getur flýtt fyrir breytingaskeiðinu.

  • Barnsins vegna á engin áfengisneysla að vera á meðgöngu og á meðan á brjóstagjöf stendur.



Konur og áfengi

Í ljósi skaðsemi áfengis er vert er að leiða hugann að mismunandi áhrifum þess á kynin og benda á ýmsa þætti sem skipta máli þegar verið er að meta áhrif þess. Hæð, þyngd og kyn skipta þarna töluverðu máli. Það þykir nægilega sannað að áfengi hefur meiri áhrif á konur en karla. Þær þola u.þ.b. 30% minna af áfengi heldur en karlar, þ.e.a.s. þurfa minna magn en karlar til að verða drukknar. Ástæðurnar eru nokkrar - og stundum persónulegar eða félagslegar- en mestu skiptir þó að konur eru yfirleitt minni og léttari en karlar og efnaskiptin eru ekki eins og hjá körlunum. Þá hafa konur minna vatn í líkamanum en karlar en vatnið í líkamanum þynnir út áfengið. Hjá körlum er um það bil 60% af líkamsþyngdinni vatn en heldur minna hjá konum. Konur hafa einnig minna af  þeim efnahvötum sem brjóta niður áfengi. Þetta skýrir að einhverju leyti af hverju konur eru með meira magn áfengis í blóði en karlar eftir að hafa drukkið sama magn af áfengi. Sem dæmi má nefna að ef karl sem vegur 90 kg og kona sem vegur 70 kg drekka sama magn áfengis verður konan fyrir mun meiri áhrifum en karlinn. Af þessum ástæðum eru konur viðkvæmari fyrir líffæraskemmdum og þá einkum lifrarskemmdum. Þá er konum sem drekka reglulega áfengi og gætu talist til áfengissjúklinga hættara við að hafa óreglulegar blæðingar , oft með miklum verkjum og missa jafnvel úr tíðarhringnum. Þetta getur haft áhrif á frjósemi kvenna og jafnvel flýtt fyrir breytingarskeiðinu.

 

Ungar stúlkur og áfengi

Ungar stúlkur eru sérlega viðkvæmar fyrir áhrifum áfengis, vegna ofangreindra líkamlegu atriða. Þær geta því auðveldlega misst stjórn á aðstæðum og umhverfi. Alvarlegar afleiðingar áfengisneyslu ungra stúlkna eru margar og alvarlegastar eru: nauðganir, ótímabær þungun, kynsjúkdómar, brottfall úr skóla vegna þungunar og barnsburðar, andleg vanlíðan og jafnvel þunglyndi.


Meðganga og brjóstagjöf

Á meðgöngu og á meðan brjóstagjöf stendur ættu konur alls ekki að neyta áfengis. Blóðkerfi barns og móður er samtengt og áfengi á því auðvelda leið í gegnum fylgju og naflastreng. Líffæri barnsins eru ekki nægilega þroskuð til að brjóta áfengið niður og barnið verður þar af leiðandi fyrir meiri áhrifum en móðirin. Það þykir allvel sannað að áfengisneysla á meðgöngu getur haft alverleg skaðleg áhrif á fóstrið og leiði til fæðingargalla. Ef móðir neytir áfengis með barn á brjósti fær barnið hluta af áfenginu með brjóstamjólkinni og verður þar af leiðandi fyrir áfengisáhrifum. Þau tengsl sem myndast milli móður og barns geta einnig brenglast þar sem áfengisdrykkja getur dregið úr mjólkurframleiðslu, mjólkin breytir um lykt og bragð og getur því orðið ógeðfelld fyrir barnið.

Rafn M. Jónsson,
verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Lýðheilsustöð

 



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica