Sími : 5 800 900
Tóbak

Að horfast í augu við staðreyndir!

10.3.2005

Frá Þorgrími Þráinssyni rithöfundi og fyrrverandi framkvæmdastjóra tóbaksvarnanefndar: "Til hvaða aðgerða myndu yfirvöld grípa ef einn Íslendingur greindist með fuglaflensu á morgun?"

* Yfir 280.000 Íslendingar reykja EKKI eða vilja EKKI reykja.

*Um 9.000 Íslendingar vilja reykja

samkvæmt Gallup-könnun).

*Um 35 Íslendingar deyja árlega af völdum óbeinna reykinga.

*Um 400 Íslendingar deyja árlega af völdum reykinga.

*Um 400.000 manns deyja árlega í heiminum af völdum óbeinna reykinga.

*Um 5.000.000 manna deyja árlega í heiminum af völdum reykinga.

*Um 50 krabbameinsvaldandi efni eru í sígarettureyk.

*39 af 40 veitingahúsum í Reykjavík brutu lög um tóbaksvarnir (skv. síðustu könnun).

*Um 23% fólks er hlynnt reykingum á veitingahúsum.

*Um 80% fólks færi oftar á veitinga- og/eða kaffihús ef þau væru reyklaus.

*81% fólks vill eiga þess kost að sitja á reyklausum svæðum á veitingahúsum.

*86% fólks telja að réttur reyklausra sé ekki virtur á börum.

*20 milljarðar eru árlegur þjóðfélagslegur kostnaður af völdum reykinga.

*6,5 milljarðar eru brúttósala tóbaks á Íslandi.

Í Rammasamningi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sem utanríkisráðherra fullgilti á vormánuðum 2004, stendur orðrétt í 8. grein um vernd gegn óbeinum reykingum:

1. Aðilar viðurkenna að vísindaleg gögn hafa með óyggjandi hætti staðfest að óbeinar reykingar valda dauða, sjúkdómum og fötlun.

2. Hver aðili skal samþykkja að koma í framkvæmd, á þeim svæðum sem innlend lögsaga nær til í skilningi landslaga, og stuðla ötullega á öðrum sviðum lögsögu að því að samþykkt verði og komið í framkvæmd skilvirkum lögum, reglum, stjórnsýsluákvæðum og/eða öðrum ráðstöfunum sem mæla fyrir um vernd gegn óbeinum reykingum á vinnustöðum innanhúss, í almenningsfarartækjum, á stöðum innanhúss fyrir almenning og, eftir því sem við á, á öðrum stöðum fyrir almenning.

Til hvaða aðgerða myndu yfirvöld grípa ef einn Íslendingur greindist með fuglaflensu á morgun?

Þorgrímur Þráinsson.

Frá Þorgrími Þráinssyni rithöfundi og fyrrverandi framkvæmdastjóra tóbaksvarnanefndar

Lesendabréf í Morgunblaðinu 27. febrúar 2005.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica