Sími : 5 800 900
Tóbak

Opið bréf til mömmu

Grein í Morgunblaðinu 31. 05.06

31.5.2006

Miðvikudaginn 31. maí, 2006 - Bréf til blaðsins Frá Einari Skúlasyni, sem situr í tóbaksvarnarráði Frá Einari Skúlasyni, sem situr í tóbaksvarnarráði:

,,SÆL mamma.

Þú áttir eflaust síst af öllu von á að fá skilaboð frá mér í gegnum Morgunblaðið, þegar ég gæti allt eins hringt í þig. Sum skilaboð eru hins vegar svo mikilvæg að aðrir hafa gott af því að heyra þau líka."
Í dag er alþjóðadagur án tóbaks og mig langar til þess að ræða við þig enn einu sinni um það að hætta að reykja. Ég hef gert það oft áður og ég veit að þú hefur líka reynt ítrekað að hætta, en því miður hefur það ekki tekist nema skamman tíma í senn. Ég þarf ekkert að ræða um skaðsemi reykinga, þú veist allt um það sjálf, hvaða áhrif það getur haft á blóðrás og blóðþrýsting, svo ekki sé minnst á lungun. Þannig að ég ætla ekki að predika um það.

Mig langar að biðja þig um að reyna enn og aftur að hætta og ekki gefast upp fyrr en það tekst. Nú ert þú orðin amma og þarft á öllu að halda til að halda góðri heilsu. Ég vil því biðja þig enn einu sinni að hætta. Ekki fyrir mig, heldur fyrir þig sjálfa og barnabörnin. Það eru ýmsar leiðir til að leita aðstoðar við að hætta að reykja, t.d. eru upplýsingar á heimasíðu Lýðheilsustöðvar www.lydheilsustod.is og það er einnig hægt að hringja í reykingasímann 800-6030, sem er opinn í dag kl. 10-22 og alla virka daga kl. 17-19. Þar eru ráðgjafar sem geta hjálpað þér af stað. Svo getur þú auðvitað líka hringt í mig og ég mun hvetja þig áfram. Þú verður bara að taka af skarið!

Með bestu kveðju,
EINAR SKÚLASON,
Mávahlíð 33, 105 Reykjavík



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica