Reyksíminn arðbær þjónusta!
Í TILEFNI 31. maí, sem er alþjóðlegur dagur án tóbaks!
Reyksíminn ,,Ráðgjöf í reykbindindi 800-6030" er símaþjónusta ætluð þeim sem vilja fá aðstoð við að hætta að reykja, nota tóbak eða hætta notkun nikótínlyfja. Þegar þú hringir í 800-6030 milli kl. 17 og 19 virka daga færðu strax samband við sérhæfðan ráðgjafa (hjúkrunarfræðing) sem veitir þér viðeigandi meðferð. Ef línan er upptekin er þér boðið að skilja eftir skilaboð í talhólfi. Ráðgjafinn hringir í þig um leið og hann losnar. Sama gildir ef þú hringir utan afgreiðslutíma. Ráðgjafinn veitir þér faglega leiðsögn og ráðgjöf í baráttunni við tóbakið. Þér er líka boðið að fá sent í pósti fræðslu- og stuðningsefni án endurgjalds.
Öll þjónusta reyksímans er veitt þér að kostnaðarlausu.
Ef þú vilt hringjum við í þig með reglulegu millibili í allt að eitt ár til að veita þér stuðning og hvatningu.
Rannsóknir sýna að eftirfylgni og stuðningur er veigamikill áhrifaþáttur í reykleysismeðferð. Þú getur líka hringt eins oft og þú vilt í reyksímann.
Ráðgjafar spyrja þig ýmissa spurninga sem eru viðeigandi til að geta veitt þér besta mögulegan stuðning. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Að auki ertu beðinn að svara nokkrum einföldum spurningum, s.s. varðandi aldur og hvar þú sást upplýsingar um númerið. En þetta eru upplýsingar sem eru mikilvægar fyrir okkur varðandi tölfræðilega vinnslu og þróun reyksímans.
Greining á kostnaðarhagkvæmni
Ein aðferð sem oft er notuð til að meta árangur af meðferð í heilbrigðiskerfinu er að reikna út áætlaðan kostnað við að auka lífslíkur um eitt ár. Samanburður á fimm hundruð þáttum í heilbrigðiskerfinu í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum sýndi greinilega að stuðningur við reykingafólk sem vill hætta að reykja er meðal ódýrustu aðgerða heilbrigðiskerfisins ef þetta viðmið er notað. Reyksímar eru mun ódýrari kostur en einstaklingsstuðningur á heilbrigðisstofnunum og hafa reynst álíka árangursríkir.
| ,,Kostnaður við hvern reyklausan var til að mynda bara þriðjungur af því sem sænski reyksíminn greiddi." |
|---|
Íslenski reyksíminn, ,,Ráðgjöf í reykbindindi - 800-6030", stenst fyllilega samanburð við bestu reyksíma erlendis hvað árangur varðar. Um það bil einn af þremur er reyklaus ári eftir fyrsta samtal. Þrátt fyrir góðan árangur hefur Helbrigðisstofnun Þingeyinga rekið reyksímann fyrir brot af þeim kostnaði sem gerist víðast erlendis og því hefur kostnaðarhagkvæmni íslenska reyksímans reynst mun meiri en gerist annars staðar á Norðurlöndum. Kostnaður við hvern reyklausann var til að mynda bara þriðjungur af því sem sænski reyksíminn greiddi.
Grasið er grænna hinum megin við lækinn og við hjálpum þér gjarnan yfir á besta vaði.
Gangi þér vel.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur hjá HÞ og einn af sjö ráðgjöfum reyksímans.
