Sími : 5 800 900
Tannvernd

Alvara málsins staðfest

18.5.2009

Ögmundur Jónasson segir rangt að verðstýra óhollustunni ofan í landsmenn. Nú þarf að snúast til varnar fyrir börn og unglinga með eftirliti og aðhaldi. Ögmundur kynnti hugmyndir sínar um sykurskatt á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Hann leggur nú drög að víðtæku samráði fagaðila um málið.
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur

sia@mbl.is

„ÉG gerði grein fyrir minni afstöðu og ráðuneytisins; um mikilvægi þess að snúast til varnar fyrir börn og unglinga meðal annars með neyslustýringu,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra. Hann kynnti hugmyndir sínar um sykurskatt á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun og segir þær tilkomnar vegna lýðheilsusjónarmiða „og til að við verðstýrum ekki óhollustunni ofan í fólkið, heldur gerum hið gagnstæða“. Tillagan er sett fram í fullu samræmi við óskir Lýðheilsustöðvar og sérfræðinga þar. Ögmundur segir jafnframt eðlilegt að horft sé til þessara mála nú, þegar alvara málsins hefur verið staðfest með löngum biðröðum í ókeypis tannlæknaþjónustu á umliðnum laugardögum. „Það er augljóst að einn þátturinn þar er verðlag, en hann er bara einn af mörgum,“ segir Ögmundur. Tannheilsa sé líka spurning um eftirlit og aðhald. „Og ég vil taka á öllum þessum þáttum,“ segir hann og upplýsir að hann leggi nú drög að víðtæku samráði fagaðila um málið.

Verður rætt betur

Ögmundur segir að eftir sé að ræða frekar um sykurskattinn í ríkisstjórninni, málið hafi aðeins lítillega verið rætt í gærmorgun. Hann segist hafa fengið geysilega góðar undirtektir við hugmyndina úti í þjóðfélaginu. „Það eru undantekningar, meðal hagsmunaaðila í gosdrykkjaframleiðslu, það er skiljanlegt að menn gæti sinna hagsmuna. En ég held að við þurfum að hugsa þetta þjóðhagslega og með tilliti til heilsufars barna og unglinga hvað varðar þessa óhollustu og sykurinn almennt þó að útfærslan þurfi að skoðast betur.“

Ögmundur minnir á að fyrir fáeinum misserum voru felld niður vörugjöld og virðisaukaskattur á matvæli, en hinn 1. mars 2007 voru felld niður vörugjöld m.a. af gosdrykkjum, þau voru áður 8 kr. á lítra af gosi og ávaxtasafa. Niðurfellingin var gerð samhliða niðurfærslu á virðisaukaskatti á matvæli úr 24,5% eða úr 14% í 7%. „Þá var skattur á gosdrykki lækkaður meira en á nokkra aðra vöru!“ Þetta segir Ögmundur hafa verið gegn ábendingum Lýðheilsustöðvar en nú sé verið að gera tillögu um að snúa þessu við.

Hann hefur ekki gert sér neinar hugmyndir um hversu miklar tekjur muni innheimtast í ríkiskassann með skattlagningunni. „Hvað skattlagningu áhrærir og áhrif hennar er eitthvað sem fjármálaráðuneytið skoðar og þá í samhengi við aðra þætti. Ég er að hugsa um heilsufarsþáttinn í þessu,“ segir Ögmundur.

Hann tekur fram að hann telji fráleitt annað en taka tillit til ábendinga bestu sérfræðinga landsins í lýðheilsumálum.

Um áhrif á neysluverðsvísitölu vegna skattlagningarinnar segir hann að hættan á aukinni verðbólgu mælist fyrst og fremst í lánum landsmanna. „Það þarf að taka á því á réttum forsendum varðandi verðtrygginguna. Staðreyndin er sú að rannsóknir hafa sýnt á óyggjandi hátt að það er samhengi á milli neyslu gosdrykkja og verðlags.“

      

Heimsmet í gosdrykkjaneyslu

„Já, veistu, ég er ekki frá því, við erum náttúrlega með heimsmet í gosdrykkjaneyslu,“ segir Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, þegar hún er spurð hvort hugmyndir heilbrigðisráðherra geti hugsanlega bætt tannheilsu íslenskra barna. Hún segir sykurinn í sætum gosdrykkjum skemma tennurnar en í sykurlausum drykkjum sé rotvarnarefni og sýra sem eyði glerungi. „Sykurlausa gosið veldur alveg jafnmiklum glerungsskemmdum sem er stórt vandamál hjá íslenskum unglingum,“ segir hún en hnykkir á að tannskemmdirnar sjálfar myndist bara vegna sykurs. Hún kveðst hlynnt því að allt gos verði skattlagt frekar.

Hugmynd Ögmundar vekur misjöfn viðbrögð og haft er eftir Jóni Steindóri Valdimarssyni, framkvæmdastjóra SI, á heimasíðu samtakanna að neysla ósykraðra drykkja hafi aukist á kostnað hinna án hjálpar skattlagningar. Jón Steindór lítur svo á að verið sé að leggja til skatt á íslenska drykkjarvöruframleiðendur, skatt á íslenskar fjölskyldur og hækkun á neysluverðsvísitölu sem kalli á aukna verðbólgu.

Þá er á heimasíðu Neytendasamtakanna minnt á ályktun þeirra gegn sykurskatti frá árinu 2004 þegar svipaðar hugmyndir voru uppi en þar kemur fram að beita þurfi öðrum aðgerðum, m.a. fyrirbyggjandi fræðslu í skólum. „Sérstök skattlagning er neyslustýring og leiðir til aukinna útgjalda heimilanna.“





Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica