Sími : 5 800 900
Tannvernd

Íhugar sykurskatt í forvarnarskyni

14.5.2009

Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt að skoða allar hliðar í málefnum tannheilsu barna. Hann segir skattahækkun á óhollustu mögulega forvarnaleið.

sigridur [hjá] frettabladid.is

Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt að skoða allar hliðar í málefnum tannheilsu barna. Hann segir skattahækkun á óhollustu mögulega forvarnaleið.
"Ég mun efna til fundar með fulltrúum Lýðheilsustöðvar, fulltrúum tannlækna og tannlæknadeildar Háskóla Íslands," segir Ögmundur Jónasson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra spurður um viðbrögð vegna umræðu um slæma tannheilsu barna. Ráðherra segir nauðsynlegt að skoða allar hliðar málsins, meðal annars gjaldskrána sem endurgreiðsla til foreldra frá Sjúkratryggingum ríkisins miðast við. "Staðreyndin er sú að tannheilsa er á heildina litið góð en hluti barna er afskiptur í þessum málum." Ögmundur segir engin áform uppi um að endurvekja skólatannlækningar til að ná til þessara barna en skoða þurfi hvernig það verður best gert.

Heilbrigðisráðherra segir vel hugsanlegt að beita skattahækkunum á sykur og aðra óhollustu til að bæta tannheilsu þjóðarinnar. Hann segir ábendingar Lýðheilsustöðvar um slíka leið hafa verið hunsaða af fyrri ríkisstjórnum sem hafi þvert á móti lækkað virðisauka á til dæmis gosdrykki, þrátt fyrir sannað samhengi gosdrykkju og tannskemmda.

Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir nauðsynlegt að koma upp einhvers konar eftirliti með tannheilbrigði skólabarna, rétt eins og fylgst er með heilsufari þeirra hjá skólahjúkrunarfræðingum og sjónin mæld. "Það verður að hugsa málið frá grunni og reyna að nálgast öll börn og foreldra þeirra." Ingibjörg bendir á að forsenda þess að hægt sé að vísa öllum börnum með skemmdar tennur til tannlæknis sé að endurgreiðsla til foreldra verði hærri eða að tannlækningar barna verði að fullu endurgreiddar af hinu opinbera.

Brýnt sé að endurskoða gjaldskrá heilbrigðisráðherra sem miðað er við í endurgreiðslu tannlækninga. Hún hafi hækkað lítið síðan 1999 sem þýðir að misræmi milli gjaldskrárinnar og þeirra gjalda sem tannlæknar innheimti sé orðið verulegt.

Ingibjörg segir að efla megi forvarnir í skólum, en forvarnir dugi ekki á skemmdir. Hún segir fullyrðingar um að tannheilsa barna sé með ágætum ekki standast. Tölur Sjúkratryggingarstofnunar sem sýna færri tannviðgerðir á hvert barn sem kemur til tannlæknis segi bara hluta sögunnar, stundum sé til dæmis gert við eina tönn í barni með fjórar skemmdar og það skili sér ekki aftur til tannlæknis.

      

Ríkið greiðir minnihlutann  

Algengt verð á skoðun hjá tannlækni eru á bilinu 3.000 til 4.000 krónur, segir Ingibjörg Sara Benediktsdóttir formaður Tannlæknafélags Íslands.

Við endurgreiðslu vegna skoðunar á börnum er hins vegar miðað við að skoðun kosti 1.780 krónur. Endurgreiddar eru 75 prósent af því eða 1.335 krónur. Ef skoðunin kostar 3.500 krónur greiða foreldrar því 2.165 eða 60 prósent heimsóknarinnar. Hluturinn er minni eða stærri eftir því hvort læknirinn rukkar nær 3000 krónum eða 4000 krónum. Sama á við um tannsteinshreinsun, þar er verð svipað og mismunurinn svipaður. 





Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica