Sími : 5 800 900
Tannvernd

Ekkert er vitað um tannheilsu stórs hóps barna

13.5.2009

Heimsóknum til tannlækna fjölgaði fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 miðað við sama tímabil í fyrra og hittifyrra, voru ríflega 20.800 í ár en tæplega 20.200 árið 2007. Að mati Reynis Jónssonar, tryggingayfirtannlæknis hjá Sjúkratryggingum Íslands, sýna þessar tölur að foreldrar spara ekki við sig heimsóknir barna til tannlækna þó að það þrengi að. Gögn frá sömu stofnun sýna að viðgerðum hjá börnum sem fara til tannlæknis hefur fækkað umtalsvert á síðustu tíu árum sem bendir til betri tannheilsu þeirra barna sem á annað borð fara til tannlæknis.

„Þetta er staðreynd," segir Reynir sem segir fullyrðingar um að tannheilsu íslenskra barna hraki ekki réttar. Hann segir hins vegar þann hóp sem ekki kemur til tannlæknis, sem er á bilinu 15 til 20% barna mikið áhyggjuefni. „Við vitum ekkert um ástandið á börnum sem ekki koma til tannlæknis og þessi börn þarf að finna."

Hólmfríður Guðmundsdóttir [tannlæknir] hjá Lýðheilsustöð segir að þegar gerð var könnun á tannheilsu barna árið 2005 hafi um helmingur barna verið með litlar eða nær engar skemmdir, tannskemmdir hafi alls ekki dreifst jafnt á börnin og dæmi hafi verið um tólf ára börn með fjölda tannskemmda. „Stærsti hluti barna á Íslandi býr við góða tannheilsu en ákveðinn og hugsanlega stækkandi hópur býr við slæma tannheilsu."

Reynir segir afar nauðsynlegt að reyna að ná til foreldra barnanna sem ekki skila sér til tannlæknis, það sé hins vegar ekki endilega einfalt mál. „Vandinn liggur í að finna börnin sem ekki fara til tannlæknis og sinna þeim." Reynir telur að skólahjúkrunarfræðingar eða heilsugæslan þyrftu að geta vísað börnum sem á þyrftu að halda til tannlæknis, kannski á sérstakt áhættuklíník sem væri gjaldfrjálst. Ef þess konar tilmælum væri ekki sinnt af foreldrum barnanna væri hægt að vísa þeim til barnaverndaryfirvalda.

„Það er auðvitað vanræksla ef börnum er ekki sinnt og þetta er jafnvel vandamál sem félagsþjónustan ætti að sinna."

Reynir er þeirrar skoðunar að kostnaður við tannlækningar barna eigi að vera að fullu endurgreiddur af hinu opinbera og segir gagnrýni á opinbera gjaldskrá sem endurgreiðslur miðast við réttmæta. „Ég hef varað töluvert lengi við því að það sé verið að eyðileggja kerfið ef gjaldskráin heldur áfram að dragast aftur úr reikningum tannlækna."

Hólmfríður tekur undir þessar áhyggjur og segir stefna í að hlutur foreldra verði það mikill að heimsókn til tannlæknis verði jafnvel óyfirstíganlegt skref. Hún segir mikilvægt að efla forvarnir í tannheilsu og segir að sameina þyrfti afl heilsugæslunnar og skólakerfisins. „Það mætti jafnvel kenna tannburstun í skólum eins og gert var áður fyrr. Það að bursta og borða hollan mat hefur auðvitað svo mikið að segja fyrir tannheilsuna."



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica