Næring og holdafar
Tennurnar eru skemmdari og börnin eru þyngri
Hólmfríður Þorgeirsdóttir sérfræðingur hjá Lýðheilsustöð segir hugmyndir um sykurskatt í anda áherslu stöðvarinnar um lýðheilsu. Um fimmtungur íslenskra grunnskólabarna er yfir kjörþyngd.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir sérfræðingur hjá Lýðheilsustöð segir hugmyndir um sykurskatt í anda áherslu stöðvarinnar um lýðheilsu. Um fimmtungur íslenskra grunnskólabarna er yfir kjörþyngd. „Það er hærra en er í næsta nágrenni okkar en bandarísk börn eru þyngri en hér,“ segir hún.
„Við vorum mjög á móti því að afnema vörugjöld á gosdrykkjum á sínum tíma,“ segir Hólmfríður og væri þetta leiðrétting á því. Rannsóknir hafa sýnt að ef sykraðra gosdrykkja er neytt í óhófi tengist það aukinni tíðni ofþyngdar og offitu. „Og svo bætist tannheilsan við.“
