Sími : 5 800 900

Geðrækt

Vinir Zippýs - Eflir tilfinningaþroska - 18.3.2010

 Eflir-tilfinngaþroska, grein í Mbl 18 mars 2010 bls 20-21Grein og viðtal eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
birtist í Morgunblaðinu, bls 20-21 fimmtudaginn 18. mars 2010

 

„Með þessu námsefni erum við að leggja grunninn að tilfinningalegri og andlegri velferð barnanna, byggja upp sjálfstraust þeirra og þrautseigju“ segir Guðrún Guðmundsdóttir sem er þeirrar skoðunar að öll börn ættu að kynnast námsefninu um Zippý.

Lesa meira
 

Mamma og pabbi sjá um málin (Morgunblaðið, 27.5.09) - 5.6.2009

  • Krakkar þurfa einfaldar og róandi útskýringar á efnahagsástandinu og hugtökum sem því eru tengd
  • Mikilvægt að foreldrar séu ekki sjálfir í uppnámi þegar þeir ræða atvinnumissi sinn við börnin

Litlu hagfræðingarnir í samfélaginu hafa sínar áhyggjur og eru kvíðnir vegna efnahagsástandsins. Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur minnir þó á að það er hlutverk foreldranna að veita þeim öryggi.

Lesa meira
 

Flestir finna fyrir breytingum á skapi - 10.12.2008

Í augum margra er svartasta skammdegið yndislegur árstími, kertaljós, kuldi og kósíheit, en sumir upplifa kvíða og vanlíðan þegar myrkrið hellist yfir. Lesa meira
 

Það er engin heilsa án geðheilsu - 8.12.2005

Verkefnið Geðrækt innan Lýðheilsustöðvar er forvarna- fræðslu- og rannsóknarverkefni um geðheilsu og áhrifaþætti hennar. Lesa meira
 

Verum óhrædd við að hrósa hvert öðru - 25.10.2005

,,Hvernig myndi okkur líða ef við fengjum aldrei klapp á bakið?"

Lesa meira

 

Verkefnið Geðrækt - 26.9.2005

Verkefnið Geðrækt innan Lýðheilsustöðvar er forvarna- fræðslu- og rannsóknarverkefni um geðheilsu og áhrifaþætti hennar. Geðrækt er ætlað að upplýsa landsmenn um geðheilbrigði og geðraskanir, um forvarnir og eflingu geðheilbrigðis og draga úr fordómum. Geðrækt er þýðing á því sem á ensku er nefnt „mental health promotion“ og er þá átt við allt það sem gert er til að hlúa að geðheilsunni. Geðrækt er því heilsuefling. Með heilsueflingu beinir fólk sjónum að heilbrigði og hvernig megi styrkja eigin heilsu og annarra. Með geðrækt er lögð áhersla á að góð geðheilsa er mikilvægur þáttur í almennu heilsufari. Lesa meira
 

Hreyfðu þig geðheilsunnar vegna - 26.9.2005

"Hreyfingin skiptir mjög miklu máli fyrir geðheilsuna og útivera er mjög góð," segir Guðrún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Geðræktar - Lýðheilsustöðvar. "Við áttum okkur ekki alltaf á því hve stutt er að fara til að komast í kyrrðina og rólegheitin hérna rétt við borgarmörkin og reyndar innan þeirra líka. Við höfum mjög fín útivistarsvæði við bæjardyrnar, til dæmis Grasagarðinn, Elliðaárdalinn og Heiðmörk." Lesa meira
 

Mikilvægt að efla forvarnir gegn sjálfsvígum - 4.3.2005

Það vakti mikla athygli hve margir fulltrúar komu frá borgaralegu samfélagi á þessa ráðstefnu," segir Héðinn Unnsteinsson, ráðgjafi hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), um ráðherraráðstefnu WHO um geðheilbrigðismál sem haldin var í Helsinki í síðustu viku. "Það er ljóst að fulltrúar borgaralegs samfélags settu mikinn svip á hana," bætir hann við. Héðinn hefur unnið að undirbúningi ráðstefnunnar sl. ár. Um fjögur hundruð manns frá 51 Evrópulandi sóttu ráðstefnuna, þar af var 31 heilbrigðisráðherra.

Sjö manna sendinefnd frá Íslandi tók þátt í ráðstefnunni, þeirra á meðal voru Sigurður Guðmundsson landlæknir, Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi geðsviðs Landspítala - háskólasjúkrahúss og lektor við Háskólann á Akureyri, og Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra.

Lesa meira
 

Geðrækt fékk alþjóðlega viðurkenningu - 4.3.2005

Verkefnið Geðrækt hlaut í síðustu viku sérstaka útnefningu Alþjóðaheilbrigðis-málastofnunarinnar (WHO) í Genf og Alþjóðageðheilbrigðissamtakanna (WFMH) sem fyrirmyndarverkefni á sviði geðræktar. Geðrækt er samstarfsverkefni Landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítala–háskólasjúkrahúss og Heilsugæslunnar í Reykjavík. Lesa meira
 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica