Sex börn undir tveggja ára aldri nærri drukknuð í ár
Herdís Storgaard, verkefnastjóri barnaslysavarna á Lýðheilsustöð, segir að frá áramótum hafi sex börn undir tveggja ára aldri verið flutt á Barnaspítala Hringsins eftir að þeim hafi legið við drukknun og þetta sé mikil fjölgun frá fyrri árum. Herdís bendir á að hér sé um mjög alvarleg tilvik að ræða og ekki hafi mikið skilið á milli feigs og ófeigs.
Eitt barnanna sem um ræðir féll í Þingvallavatn, eitt í sjó og tvö þeirra voru hætt komin í baðkeri.
"Frá árinu 1984 til ársins 1993 urðu fjörutíu og átta drukknunarslys en um það leyti var farið í mikið forvarnastarf. Þá voru öryggisreglur fyrir sundstaði settar og kröfur til setlauga í görðum hertar til muna. Slysum af þessu tagi fækkaði í kjölfarið. Frá árinu 1993 til ársins 2003 hafði þessum slysum fækkað um 55% frá því sem var á árabilinu 1984 til 1993. Nú sjáum við hins vegar ógnvekjandi tölur," segir Herdís og bendir á að forvarna sé ætíð þörf í þessum efnum. Þannig komi fram á sjónarsviðið nýir foreldrar og ný tækni á hverju ári.
Ekki má líta af ungum börnum
Herdís beinir þeim tilmælum til þeirra sem eru á ferðinni um helgina að passa vel upp á börn sín séu þau nálægt ám og vötnum eða annars staðar þar sem hætta á drukknun getur skapast.
Eftir Þóri Júlíusson thorir@mbl.is (Morgunblaðið)
