Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Röng notkun baðsæta getur verið hættuleg

8.9.2005

"Fólk treystir þessum baðsætum allt of mikið og heldur að þetta sé öryggisbúnaður, sem þetta er ekki því þessi baðsæti eru aðeins til að aðstoða fólk við að baða börnin," segir Herdís L. Storgaard hjá Lýðheilsustöð.

BaðsætiNýlega var fimm mánaða gamalt barn hér á landi nærri drukknað þegar litið var af því þar sem það sat í baðsæti. Baðsætið, sem fest er við baðkarið með sogkoppum, losnaði með þeim afleiðingum að barninu hvolfdi ofan í vatnið. Herdís segir sogkoppana á sætunum alls ekki halda vel. "Það þarf litla hreyfingu hjá barninu svo þeir losni frá og annað, sem fólk áttar sig ekki á, er að sogkopparnir verða sápumettaðir með tímanum og missa sogkraftinn. Það er þess vegna sem það má ekki undir nokkrum kringumstæðum skilja barnið eftir eitt augnablik."

Sætin aðeins hjálparbúnaður

Slysið sem átti sér stað um daginn er fyrsta alvarlega slysið sem Herdís fær fregnir af en hún veit hins vegar að það hafa orðið dauðaslys vegna svona baðsæta í nágrannalöndunum. "Það er mikil umræða í Evrópu um þennan búnað því að notkun hans hefur svo mikla hættu í för með sér. Og hættan felst fyrst og fremst í því að fólk treystir vörunni of mikið og víkur frá barninu eitt augnablik eins og gerðist í tilfellinu hér á landi," segir Herdís.

Ekki er mælt með því að börn sem ekki geta setið óstudd noti baðsætið, oft er miðað við að barnið sé orðið sex mánaða. Hætta skal notkun baðsætis þegar barnið getur staðið upp án hjálpar. Ástæða þess er sú að börn sem geta staðið upp óstudd eru orðin það styrk að þau geta haft áhrif á virkni sogkoppana með þeim afleiðingum að þeir losna frá baðkarinu.

Herdís segir slysin í baðsætum gerast á tvenns konar hátt; barnið buslar mikið eða hallar sér fram svo sætið losnar og barnið steypist fram fyrir sig. Og fólk setur of ung börn í sætin svo þau renna niður úr þeim og ofan í vatnið. Herdís leggur áherslu á að sætin séu aðeins hjálparbúnaður við böðun og séu þau notuð rétt og undir stöðugu eftirliti eigi þau að vera í lagi.

Henta ekki í öll baðkör

Fjóla Guðjónsdóttir hjá Neytendastofu segir að það eigi að fylgja leiðbeiningar með öllum keyptum baðsætum og þar komi fram hvernig á að nota þau, fyrir hvaða aldursflokka þau eru, hvernig á að hreinsa þau og upplýsingar um eftirlit. Á flestum baðsætum eru líka strik sem sýna hvað vatnið má ná hátt upp á þau. Hún segir þó að því miður séu leiðbeiningarnar yfirleitt ekki á íslensku.

Þegar baðsæti er notað er mikilvægt að baðkarið og sogkopparnir á sætunum séu hreinsaðir með efni sem ekki skilur eftir sig fitu- eða sápulag. Aldrei má nota baðsæti á hálu yfirborði eða í halla og hafa ber í huga að ekki er hægt að nota baðsæti í öllum baðkörum. Hætta á að nota baðsætið um leið og virkni sogkoppana minnkar eða þeir skemmast. En fyrst og fremst ber fólki að hafa í huga að baðsæti eru ekki öryggisbúnaður og ekki má sleppa augunum af börnum í sætunum.

Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica