Tveggja ára drengur var hætt kominn er hann féll ofan í um eins metra djúpa sundlaug við heimili sitt í Mosfellsbæ í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík kom faðir drengsins honum til bjargar í tæka tíð en drengurinn var fluttur á bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins til aðhlynningar í kjölfarið og er líðan hans stöðug.
Lesa meira
"Fólk treystir þessum baðsætum allt of mikið og heldur að þetta sé öryggisbúnaður, sem þetta er ekki því þessi baðsæti eru aðeins til að aðstoða fólk við að baða börnin," segir Herdís L. Storgaard hjá Lýðheilsustöð.
Lesa meira