Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Meirihlutinn vill reyklausa veitinga- og skemmtistaði

9.3.2005

Niðurstöður nýrrar könnunar Lýðheilustöðvar á viðhorfi landsmanna til reyklausra veitingahúsa liggja nú fyrir.

GALLUP gerði könnunina fyrir Lýðheilsustöð dagana 16. febrúar-1. mars 2005. Helstu niðurstöður eru þær að 61,3% fólks á aldrinum 15-89 ára og 60,4% fólks á aldrinum 18-69 ára eru fylgjandi því að allir veitinga- og skemmtistaðir séu reyklausir. Um 85,5% fólks sagði að það myndi fara jafnoft eða oftar á þessa staði ef þeir væru reyklausir. Einnig töldu 93,8% svarenda það vera skaðlegt fyrir heilsu fólks að vinna í umhverfi þar sem reykt er.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica