Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Læknar lýsa stuðningi við tóbaksvarnafrumvarp

4.3.2005

Stjórn Læknafélags Íslands ræddi í gær um frumvarp Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri alþingismanna um breytingar á lögum um tóbaksvarnir. Hefur stjórnin í kjölfarið sent bréf til þingmanna þar sem lýst er stuðningi við efni frumvarpsins.

Í bréfinu segir, að að sú lagabreyting, sem myndi fylgja samþykkt frumvarpsins, tryggi starfsmönnum veitingahúsa þá vinnuvernd, sem þeir hafi farið á mis við vegna gildandi undanþáguákvæða um vinnustaði þeirra. Stjórn LÍ telji, að engin málefnaleg rök séu til þess, að þetta starfsfólk njóti lakari vinnuverndar en aðrir landsmenn.

Frétt af www.mbl.is þann 4.mars 2005



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica