Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Landlæknisembættið lýsir stuðningi við frumvarp um tóbaksvarnir

2.3.2005

Landlæknisembættið lýsir á heimasíðu sinni yfir eindregnum stuðningi við það frumvarp um breytingar á tóbaksvarnalögum sem Siv Friðleifsdóttir og fleiri alþingismenn hafa lagt fram á Alþingi. Segir landlæknisembættið að breytingin feli í sér að gætt sé samræmis milli tóbaksvarnarlaga og vinnuverndarlaga varðandi vernd starfsmanna.

Í frumvarpinu er kveðið á um að lagt verði bann við reykingum í öllum fyrirtækjum, stofnunum og á opinberum stöðum, þ.m.t. hótelum, veitingahúsum, börum og öðrum skemmtistöðum til þess að tryggja öllum vinnandi mönnum reyklaust vinnurými.

Segir embættið að tóbaksnotkun sé ein veigamesta orsök sjúkdóma og ótímabærs dauða í vestrænum samfélögum sem hægt sé að fyrirbyggja og séu afleiðingar reykinga eitt helsta heilbrigðisvandamál á Íslandi. Árlega deyi um 400 Íslendingar af völdum beinna og óbeinna reykinga. Segir embættið, að í ljósi þeirra upplýsinga, sem nú liggi fyrir um skaðsemi af óbeinum reykingum, hljóti það að vera sjálfsögð réttindi starfsfólks á öllum vinnustöðum að það geti sinnt sínu starfi í reyklausu rými.

Frétt af www.mbl.is þann 2.mars 2005.

Heimasíða landlæknisembættisins



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica