Reykingar skaða líka heilsu ungs fólks
Fólk undir fertugu sem reykir er í fimmfalt meiri hættu á að fá hjartaáfall en fólk sem ekki reykir.
Þessar niðurstöður eru byggðar á tölum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninnni (WHO) og birtar eru í tímaritinu Journal of Tobacco Control.
Alþjóðlegur hópur vísindamanna, frá Mið-Evrópu, Kína, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Bandaríkjunum, skoðaði 23.000 hjartaáföll hjá fólki sem ekki hafði látist af völdum áfallsins og orðið höfðu á árunum 1985-1994. Hópurinn komst að því að fjórir af hverjum fimm fórnarlambanna á aldrinum 35-39 ára voru reykingamenn.
Kalmenn á aldrinum 35-39 ára sem reyktu voru í fimm falt meiri hættu á að fá hjartaáfall, borið saman við jafnaldra sem ekki reykja. Áhrif reykinga voru jafnvel meiri hjá konum á sama aldri.
Dr. Tim Bowker, hjá the British Heart Foundation, sagði: „Þetta ætti að vera sterk vísbending til ungs reykingafólks um að reykingar skaða ekki aðeins heilsuna seint á lífsleiðinni, og stytti þannig ævina, heldur setja þær fólk í margfalda hættu á að fá hjartaáfall, jafnvel áður en það nær miðjum aldri.“ Einnig benti hann á að þessar niðurstöður ættu að hvetja unga reykingarmenn til að hugsa um daginn í dag í stað þess að einblína bara á hættuna í framtíðinni.
(Þýðing á frétt BBCNEWS)
