Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Bagg er bögg - Átak gegn munntóbaksnotkun

5.8.2010

bagg_er_bgg_allir

„Bagg er bögg“ er nýtt átaksverkefni Jafningjafræðslu Hins hússins, Knattspyrnusambands Íslands og Lýðheilsustöðvar til að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur.

Verkefninu var hleypt af stokkunum með blaðamannafundi fyrir skemmstu. Á fundinum voru frumsýnd veggspjöld og bæklingar sem höfðu verið hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Þessu efni verður dreift til íþróttafélaga, skóla og félagsmiðstöðva í haust og Jafningjafræðslan mun einnig halda fræðslufundi um munntóbak fyrir knattspyrnuiðkendur í 2. og 3. flokki í vetur.
Bagg_02Jón Heiðar Gunnarsson framkvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar, Viðar Jensson verkefnastjóri á Lýðheilsustöð og Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ ræddu við blaðamenn um munntóbak og verkefnið.

Viðar benti m.a. á að á sama tíma og reykingar hafa verið að dragast saman í mörg ár er munntóbaksneysla ungs fólks að aukast.

Einnig að almennt er samanburður á munntóbaksnotkun og reykingum ekki góður eða gagnlegur, því það er fátt eins hættulegt og að reykja. Það sé eðlilegra að bera saman munntóbaksneyslu við að nota ekki munntóbak.
Því miður sé það þó staðreynd að neysla munntóbaks hefur verið að aukast nokkuð mikið undanfarin ár.  Það komi fram í könnunum sem Lýðheilsustöð hefur látið gera meðal ungs fólks á aldrinum 16-23 ára. Samkvæmt tveimur könnunum, seint á síðasta ári og svo núna aftur í vor Bagg_04kemur í ljós að 20% pilta á aldrinum 16-23 ára nota munntóbak og  um 15% daglega. Þessi aukning sjáist einnig í framleiðslutölum á neftóbaki ÁTVR en aðeins á tveimur árum frá 2007 hefur framleiðslan aukist um 7 tonn, úr tæpum 17 tonnum í tæp 24 tonn í fyrra.
Reynslan frá Svíþjóð þar sem munntóbak er leyft og framleitt er að neyslan sé meiri og nær upp alla aldurshópa auk þess sem hún er umtalsverð meðal kvenna.


Sjá einnig um munntóbak og tannheilsu



Deildu með öðrum

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica