Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Reykjalundur hlýtur viðurkenningu vegna tóbaksmeðferðar

2.6.2010

ReyklausDagur_Reykjalundur_72_1200Á morgunverðarþingi, sem haldið var í tilefni af Degi án tóbaks 2010, var tilkynnt að Reykjalundur hefði hlotið viðurkenningu, ,,SmokeFreeAward”, í flokki heilbrigðisstarfsmanna en hana hljóta þeir sem með baráttuvilja, framsýni og hugrekki leggja sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð á Íslandi.

Deildu með öðrum

Á Reykjalundi hefur um árabil verið við lýði aðstoð fyrir þá sem vilja hætta að reykja, auk þess sem öllum sem þangað koma til hvers konar meðferðar er boðin slík aðstoð. Tilnefningar voru sendar til Reyksímans og margir nefndu Reykjalund. Reykjalundi var fært verkið Sóleggið eftir Daða Guðbjörnsson listamann með skildi þar sem tilnefningin er tilgreind.

Í viðtali Fréttablaðsins við Jónínu Sigurgeirsdóttur, hjúkrunarfræðing á Reykjalundi, greinir hún m.a. frá því að tíu ár eru síðan meðferð við tóbaksfíkn á Reykjalundi var tekin til gagngerrar endurskoðunar ákveðið verið að hún yrði þverfagleg meðferð sem tengdist öllum deildum á Reykjalundi. Meðferðin væri í boði fyrir alla sjúklinga hvort sem þeir væru lungnasjúklingar, gigtarsjúklingar, hjartasjúklingar eða annars konar sjúklingar.

Meðferðarhópinn skipa 25 sérfræðingar en í honum eru hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar.

Ein af ástæðum þess að reykleysismeðferð var tekin upp á Reykjalundi var að ljóst var að endurhæfing nýttist þeim ekki vel sem héldu áfram að reykja og fólkinu var því hjálpað við að taka upp heilbrigðan lífsstíl. Fólkinu er síðan fylgt eftir í heilt ár eftir útskrift með því að hringt er í það og sagði Jónína að þau heyrðu á fólki að því þætti gott að eiga von á símhringingunni.

Nýjar upplýsingar um áhrif reykinga

Á morgunverðarþinginu voru haldnir mjög áhugaverðir fyrirlestrar auk þess sem Guðrún Helgadóttir, rithöfundur, sagði á sinn skemmtilega hátt frá því hvernig henni hefði tekist að hætta að reykja eftir að hafa reykt í rúm 50 ár. Sigríður Arnardóttir, útvarpskona, stjórnaði fundinum á léttan og skemmtilegan hátt.

Ýmislegt nýtt kom fram í fyrirlestrum læknanna, auk þess sem áréttað var mikilvægi þess að nota alltaf tækifærið til að ræða um reykingar við sjúklinga. Nefnt var að þar þyrfti heilsugæslan að koma sterkar inn. Tímaleysi er það sem heilbrigðisstarfsfólk nefnir oft sem ástæðu þess að almennt sé ekki rætt um reykingar en Sigurður Björnsson, krabbameinslæknir, sagði að slíkt ætti ekki að heyrast því að sínu mati væri það mikilvægasta sem hægt væri að gera fyrir nokkurn sjúkling sem reykti væri að fá hann til að hætta. Hversu mikið sem hann sjálfur hefði að gera þá sleppti hann því aldrei að ræða þetta.
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, hjartalæknir, ræddi um þá áhættu fyrir hjartað sem reykingar hafa fyrir konur og skýrði hvernig áhrifin geta verið öðruvísi á konur en karla. Þórður Þórkelsson, barnalæknir, ræddi um áhrif reykinga á fóstur og óbeinna reykinga á börn, þar sem m.a. kom fram að rannsóknir sýni mun meiri áhrif óbeinna reykinga á börn en menn höfðu gert sér grein fyrir. Til dæmis áhrifum sem börn, á heimilum þar sem ekki er reykt, verða fyrir þegar reykt er í fjölbýlishúsi þar sem þau búa.


Fyrirlestrana er hægt að skoða og hlusta á með því að smella á viðeigandi heiti hér að neðan.


Sigurður Björnsson, krabbameinslæknir
Reykingar - er mælirinn fullur?

Skoða skyggnur (PDF).      - Hlusta á fyrirlesturinn Sound_Icon1_25

Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, hjartalæknir
Konur! Hjartað og reykingar - hver er áhættan?
Skoða skyggnur (PDF).     - Hlusta á fyrirlesturinnSound_Icon1_25

Þórður Þórkelsson, barnalæknir
Börn og tóbaksreykingar

Skoða skyggnur (PDF).     - Hlusta á fyrirlesturinnSound_Icon1_25

Hætt að reykja
Guðrún Helgadóttir
, rithöfundur
                                        - Hlusta á fyrirlesturinnSound_Icon1_25


 ReyklausDagur_Reykjalundur_59_1200 ReyklausDagur_Reykjalundur_62_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_70_1200
 ReyklausDagur_Reykjalundur_72_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_74_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_77_1200
 ReyklausDagur_Reykjalundur_83_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_117_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_114_1200
 ReyklausDagur_Reykjalundur_109_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_91_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_112_1200
 ReyklausDagur_Reykjalundur_126_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_133_1200  ReyklausDagur_Reykjalundur_144_1200

 

Deildu með öðrum

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica