Dagur án tóbaks – Konur og reykingar
Dagur án tóbaks er haldinn 31. maí ár hvert. Sú ánægjulega þróun hefur átt sér stað að frá því mælingar á reykingum hófust hafa aldrei á sama tíma verið uppi jafnmargir Íslendingar sem hafa verið reyklausir allt sitt líf. Þessi þróun á jafnt við um karla sem konur, en ekki síst til að hvetja þær konur sem enn reykja, er þema tóbakslausa dagsins í ár: Konur og reykingar og er boðið til morgunverðarþings til að fjalla um málið í því ljósi.
Í tilefni af tóbakslausa deginum hefur Lýðheilsustöð látið útbúa skilaboð
(auglýsingar) um konur og reykingar sem birtast munu víða. Morgunverðarþingið verður á Grand hóteli og hefst kl. 8:30. Læknar munu fjalla um áhrif tóbaksnotkunar á heilsu kvenna, tvær konur segja frá sinni reynslu af reykingum og hvernig þeim tókst að lokum að hætta.
(Sjá nánar í dagskrá, smellið á mynd til að stækka).
Á þinginu verður einnig í annað sinn veitt s.k. ,,SmokeFreeAward”, þ.e. viðurkenning í flokki heilbrigðisstarfsmanna fyrir þá sem með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki hafa lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð á Íslandi.
Aldrei fleiri Íslendingar reyklausir alla ævi
Frá því reglulegar mælingar á reykingavenjum Íslendinga hófust hafa aldrei verið jafn margir Íslendingar reyklausir allt sitt líf. Árið 2009 hafði rétt tæpur helmingur Íslendinga, eða 48,6%, aldrei reykt samkvæmt árlegum könnunum Lýðheilsustöðvar. Nokkru fleiri konur hafa verið reyklausar allt sitt líf eða um 49% á móti 45% karla, þegar tölur frá 2007-2009 eru teknar saman.
Hlutfall íslenskra karla og kvenna, 15 ára og eldri sem hafa aldrei reykt
Breytingar á hlutfalli fólks sem aldrei hefur reykt má fyrst of fremst rekja til þess að ungt fólk byrjar síður að reykja nú til dags og temur sér heilbrigðan lífsstíl án reykinga.
Að hluta til hækkar hlutfall Íslendinga sem aldrei hafa reykt líka vegna þess að reykingafólk deyr fyrr en þeir sem ekki reykja.
Hlutfall Íslendinga 15 ára og eldri sem hafa aldrei reykt.
Lýðheilsustöð hefur fengið Capacent-Gallup til að safna gögnum síðustu ár, þar sem hringt er í tilviljunarkennt úrtak úr þjóðskrá og fólk spurt um reykingavenjur.
Rannsóknina má sjá í heild sinni á þessari vefsíðu.
Fleirum tekst nú að hætta
Rannsóknir Lýðheilsustöðvar á reykingavenjum fólks á Íslandi sýna að nú eru ekki einungis sífellt fleiri sem eru reyklausir allt sitt líf, heldur tekst einnig fjölmörgum að hætta að reykja á hverju ári. Margir nýta til þess einhver af fjölmörgum úrræðum sem í boði eru, t.d. Reyksímann 8006030 og gagnvirku vefsíðuna reyklaus.is . Einnig er hugsanlegt að reykingabann á veitingahúsum hafi haft þær jákvæðu aukaverkanir að sífellt fleiri, sem vilja hætta að reykja, hafi tekist það núna. Þrátt fyrir góðan árangur margra við að hætta að reykja þá er auðvitað nú sem áður best að byrja aldrei.
Sjá einnig greinina: Heilsa kvenna og reykingar


