Reyklaus bekkur 2009-2010
- Úrslit
Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins skólaárið 2009-2010 er lokið, og úrslit liggja fyrir. Bekkirnir kepptu um lokaverðlaun sem er ferð til Danmerkur fyrir bekkinn sem hlýtur fyrstu verðlaun, og iPod nano fyrir alla nemendur bekkjarins sem hreppir önnur verðlaun. Í ár tóku 290 bekkir, víðsvegar um landið, þátt í keppninni milli reyklausra bekkja. Um 100 lokaverkefni bárust og hafa þau aldrei verið fleiri.
Þetta er ellefta árið í röð sem Íslendingar taka þátt í þessu Evrópuverkefni.
Á skólaárinu þurftu bekkirnir að staðfesta sex sinnum að þeir væru reyklausir og voru þá með í útdrætti um vinninga. Vinningar voru bakpokar og geisladiskar. Allir þátttakendur fengu senda litla gjöf sem í ár var reglustika og blýantar.
Úrslitakeppnin
Til að eiga möguleika á fyrstu verðlaunum þurftu bekkirnir að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Nánari útfærsla var ekki skilgreind til að þrengja ekki hugmyndir að verkefnum.
Eins og fyrr var skipuð þriggja manna dómnefnd sem var mikill vandi á höndum að velja sigurvegarann.
Mjög mörg lokaverkefnanna voru afar vel unnin, sem gladdi dómnefnd en gerði henni einnig erfitt fyrir.
Við gerð fjölda verkefna var leitað út fyrir skólastarfið og stuðlað að samvinnu, miðlun og öflun þekkingar um skaðsemi tóbaksnotkunar.
Úrslit
1. sæti
- Utanlandsferð
7. bekkur Grunnskólans á Hellu,
2. sæti
- iPod nano fyrir nemendur bekkjarins
Ártúnsskóli 7. LB
Lýðheilsustöð óskar vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar öllum kennurum og nemendum fyrir þátttökuna og ánægjulegt samstarf.
Að lokum er bent á að stærsti ávinninginn er að vera frjáls reyklaus!
Nánar um sigurverkefnin hér.


