Enn dregur úr daglegum reykingum
Skýrsla er komin út með samantekt kannananna þriggja sem unnar voru á tímabilinu febrúar til september 2009. Markmiðið með könnunum er að skoða umfang reykinga landsmanna og þróun frá fyrri mælingum.
Spurt var: Reykir þú eða hefur þú reykt? og á myndinni hér að neðan sést yfirlit yfir mælingar á daglegum reykingum fullorðinna, eða á aldrinum 15-89 ára. Yfirlitið sýnir að jafnt og þétt hefur dregið úr daglegum reykingum fólks á Íslandi. Árið 1991 reyktu 30% daglega og nú - aðeins 18 árum síðar - er tíðni daglegra reykinga komin niður í 15,4%.
Þess má geta að í Heilbrigðisáætlun til ársins 2010 (bls. 12) var stefnt að því að hlutfall fólks á aldrinum 18–69 ára sem reykir yrði undir 15%. Þegar unnið var að gerð hennar þótti þetta háleitt markmið sem jafnvel væri erfitt á ná. Þessi tala er nú 16,8%, skv. samantektarskýrslunni 2009 (bls. 32).
Karlar og konur
Ekki er marktækur munur á tíðni reykinga karla og kvenna í ár: 15,2% kvenna á Íslandi reykja daglega og 15,7% karla. En svo virðist sem karlmenn á Íslandi hafi tekið sig á og hætt að reykja, því fyrir ári reyktu um 20% þeirra daglega.
Þess má geta að nú bjóðast fleiri úrræði fyrir þá sem vilja hætta að reykja en áður fyrr og má þar nefna gagnvirku vefsíðuna reyklaus.is og þá aðstoð sem Reyksíminn veitir, en hvoru tveggja er fólki að kostnaðarlausu. Einnig hafa ný, árangursrík lyf til að hætta að reykja komið á markað. Almennt má því segja að auðveldara sé nú en áður að hætta að reykja, sé viljinn fyrir hendi.
Mynd: Reykir þú eða hefur þú reykt? (Allir, greint eftir kyni)
Reykingar eftir aldri
Hægt er að skoða niðurstöður kannananna út frá ýmsum fleiri sjónarhornum, s.s. aldri, búsetu, menntum og fjárhag. Einnig eru tölur yfir þá sem aldrei hafa reykt sem og þá sem reykja sjaldnar en daglega (bls. 23) en í þeim hópi hefur einnig dregið úr reykingum.
Hér á eftir eru samantektarmyndir yfir reykingar eftir aldri.




