Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Ert þú ,,Tóbakslausi maður/kona ársins 2009"?

Verðlaunasamkeppnin - Reyklaus 2009

18.6.2009

Verðlaunasamkeppnin Reyklaus 2009. Smellið á myndina til að opna vefsíðu samkeppninnar. Reyksíminn og Lýðheilsustöð fara nú af stað með verðlaunasamkeppnina „Reyklaus 2009“ á Íslandi. Þessi keppni var haldin í fyrsta skipti í fyrra en þeir geta tekið þátt sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, og geta miðlað góðri sögu af reynslu sinni sem gæti orðið öðrum hvatning í baráttunni gegn tóbakinu. Góð verðlaun eru í boði.

Þeir sem vilja taka þátt í ár þurfa að hafa hætt að reykja eftir 31. desember 2007 eða ætla að hætta fyrir 30. júní 2009. Þeir geta þá skráð sig til þátttöku með rafrænum hætti hér á vefsíðunni fram til 30. júní 2009. Eftir það þurfa þeir að vera reyklausir. Á vefsíðu keppninnar eru allar nánari upplýsingar: www.lydheilsustod.is/reyklaus2009

Þátttakan í fyrra mjög góð því 450 sögur bárust en verðlaunahafinn var Rut Sigurðardóttir. Dómnefnd fer yfir sögurnar sem þátttakendur senda og velur þær sögur sem teljast áhrifamestar til að veita öðrum innblástur til að hætta að reykja, auk þess að velja fulltrúa Íslands í Evrópusamkeppnina.

Verðlaun á Íslandi

Dómnefnd tilkynnir úrslitin í janúar 2010. Verðlaunasamkeppnin er hluti af „European Smoke Free Awards 2009“ sem Evrópuráð reyksíma stendur að. Aðalverðlaunin fyrir vinningshafann á Íslandi eru ferð til Spánar í febrúar 2010, á Evrópsku verðlaunaafhendinguna, ásamt 50.000 þúsundum íslenskra króna í gjaldeyri.

Möguleiki á Evrópuverðlaunum

Að auki hefur íslenski vinningshafinn möguleika á að vera valinn vinningshafi Evrópu. Nítján Evrópulönd taka þátt í þessari keppni og munu öll senda sinn fulltrúa til Spánar. Vinningshafi Evrópu („European Quitter of the Year“) hlýtur í verðlaun ferðaávísun upp á 5.000 evrur og sá sem hlýtur önnur verðlaun hlýtur ferðaávísun upp á 2000 evrur.

Tilnefningar um baráttumann/baráttuhóp gegn tóbaki og meðferðaraðila í tóbaksmeðferð

Þá er óskað eftir að tilnefningu um einstakling eða hóp sem hafa með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð þeirra sem heyja baráttu við tóbakið. Þeir sem hljóta viðurkenningu verða tilnefndir fulltrúar íslands í keppninni „European Smokefree Award 2009“.

Margir hafa unnið ötult starf í tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð sem ekki má vanmeta. Þetta á sinn þátt í því að Ísland stendur framarlega í lagasetningu og öðru sem tengist tóbaksvörnum.

Fjöldi heilbrigðisstarfsmanna hefur unnið óeigingjarnt starf við tóbaksmeðferð, en það að hjálpa fólki að hætta að reykja er af eitt mikilvægustu hlutverkum heilbrigðisstarfsmanna til að bæta heilsu skjólstæðinga sinna.

Óskað er eftir tilnefningu í tveimur flokkum:

1. Heilbrigðisstarfsmaður/meðferðaraðili eða hópur starfsmanna, sem hefur unnið sérstaklega að því að aðstoða fólk við að hætta að reykja.

2. Einstaklingur/hópur einstaklinga fyrir baráttu í tóbaksvörnum, fyrir sérstakt framlag í þágu tóbaksvarna á Íslandi.

Tilnefning

Hægt er að tilnefna með rafrænum hætti á www.lydheilsustod.is/reyklaus2009

til 30. desember 2009. Dómnefnd fer yfir tilnefningarnar en viðurkenningar verða veittar í þessum tveimur flokkum i febrúar 2010.

Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við reyksímann í síma 8006030, svarað er í síma milli kl. 17 og 20 virka daga, símsvari þess á milli, eða senda tölvupóst á reyklaus@reyklaus.is .

Pfizer er styrktaraðili European Smokefree Awards 2009.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica