Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Dagur án tóbaks 31. maí

27.5.2009

Auglýsing um reykingar. Smellið á mynd til að stækka. Dagur án tóbaks er árlega haldinn 31. maí. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) ákveður þema hvers árs og í ár er dagurinn helgaður viðvörunum, í formi mynda, á tóbaksvörur um hættuna af reykingum . Alþingi samþykkti í vor að innleiða á Íslandi Evróputilskipun um myndmerkingar á tóbaksvörur en Lýðheilsustöð hefur beitt sér fyrir því að það yrði gert.


Myndmerking á tóbaki. Rannsóknir hafa sýnt að áhrifamáttur merkinga á tóbaksvörum fer eftir stærð þeirra, staðsetningu merkinga á pakkanum og af hvaða tegund þær eru. Þessar rannsóknir hafa gefið vísbendingar um að aðvaranir í formi mynda veki fólk frekar til umhugsunar um heilsutengda áhættuhegðun en eingöngu texti. Myndir fangi frekar athygli fólks, það verði meðvitaðra um áhættuna og sýni frekar tilfinningaviðbrögð. Þannig eru myndir eftirminnalegri í huga fólks og því öflugri leið til þess að hvetja fólk til að hætta að reykja.
Forvarnir gegn tóbaksnotkun eru áhrifaríkasta leiðin til að draga úr dauðsföllum á heimsvísu. Samkvæmt tölum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni deyja meira en 5 milljónir manna árlega af völdum tóbaksnotkunar. Það eru fleiri en deyja úr alnæmi, malaríu og berklum samanlagt. Engu að síður er tóbak lögleg söluvara sem veldur fjölda dauðsfalla ár hvert.


Dagur án tóbaks 2009

Auglýsingar um tóbak, 2. Smellið á mynd til að stækka. Í tilefni af deginum í ár hefur Lýðheilsustöð látið útbúa auglýsingar þar sem notaðar eru hluti af myndmerkingum á tóbaksvörur frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Gert er ráð fyrir að myndmerkingar verði komnar á tóbaksvörur á Íslandi á næsta ári.

Heilsuviðvaranir í 40 ár á Íslandi

120reykingardrepaGaman er að geta þess að Dagur án tóbaks hefur verið haldinn á Íslandi frá árinu 1979, eða í 30 ár. Í ár eru svo 40 ár síðan heilsuviðvaranir voru fyrst settar á tóbaksvörur á Íslandi en Ísland var meðal fyrstu landa til að setja slíkar merkingar á tóbaksvörur.

Um tóbakslausa daginn á vef WHO.


Myndir segja meira en 1000 orð.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica