Reyklaus bekkur 2008-09: Úrslit
Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins er lokið í ár. Bekkirnir kepptu að venju um lokaverðlaun, ferð til Danmerkur fyrir allan bekkinn, auk 2. og 3. sætis. Í ár tóku 324 skólar þátt og 100 lokaverkefni bárust, og hafa þau aldrei verið fleiri. 1. sæti hlaut 8. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar.
Þetta er tíunda árið í röð sem Íslendingar taka þátt í þessu Evrópuverkefni. Í ár tóku 324 bekkir víðsvegar um landið þátt, og 100 lokaverkefni bárust. Áberandi mörg lokaverkefnanna voru mjög vel unnin, sem gladdi dómnefnd en gerði henni einnig erfitt fyrir.
Að lokum komst dómnefnd þó að eftirfarandi niðurstöðu:
1. sæti; Danmerkurferð: 8. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar.
2. sæti; iPod Nano fyrir alla í bekknum: 7. bekkur Súðavíkurskóla
3. sæti; verðlaunafé til innanlandsferðar eða annars fyrir bekkinn: 7. bekkir BB, BH og HLE í Hlíðaskóla.*
* Dómnefnd treysti sér ekki til að velja á milli verkefna þessara þriggja bekkja, enda voru þau öll framúrskarandi. Því var ákveðið að láta bekkina deila með sér verðlaunum fyrir 3ja sæti.
Á skólaárinu þurftu bekkirnir að staðfesta sex sinnum að þeir væru reyklausir og voru þá með í útdrætti um vinninga. Vinningar voru bakpokar og geisladiskar. Allir þátttakendur fengu senda litla gjöf sem í ár var vasareiknir.
Til að eiga möguleika á að vinna fyrstu verðlaun þurfa bekkirnir að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Nánari útfærsla hefur ekki verið skilgreind til að þrengja ekki hugmyndir að verkefnum. Í ár bárust fleiri verkefni en nokkurntímann áður og var þriggja manna dómnefnd mikill vandi á höndum að velja sigurvegarann. Eins og áður hefur komið fram þá var greinilega mikil vinna lögð í áberandi mörg þeirra, og það er virkilega ánægjulegt að finna þá sköpun og hugarflug sem á sér stað meðal grunnskólanema landsins.
Lýðheilsustöð óskar vinningshöfum innilega til hamingju og þakkar öllum kennurum og nemendum fyrir þátttökuna og ánægjulegt samstarf.
Dreifðu um vefinn
