Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Verður áramótaheitið í ár til fjár?

7.1.2009

Verður áramótaheitið í ár til fjár? Smellið á mynd til að stækka

Í upphafi nýs árs huga margir að því að breyta lifnaðar-háttum sínum til hins betra, ekki síst að hætta að reykja. Lýðheilsustöð hefur að undanförnu minnt á það, með skilaboðum í fjölmiðlum, að betri árangur næst með því að fá aðstoð við að hætta að reykja. Einnig er minnt á að kostnaðurinn við reykingar er mjög hár.

Það hefur sýnt sig að árangur við að hætta reykja með aðstoð getur verið allt að tvöfalt betri en að reyna að hætta án aðstoðar, þótt vissulega takist það mörgum.

Misjafnt er hvað hverjum og einum hentar en Lýðheilsustöð bendir sérstaklega á aðstoð sem er fólki að kostnaðarlausu: Ráðgjöf í reykbindindi 800 630, en þar svara hjúkrunarfræðingar sem sérhæfðir eru í slíkri aðstoð og leiðbeina hverjum og einum miðað við hans þarfir.

Einnig á gagnvirku heimasíðuna reyklaus.is sem Lýðheilsustöð setti á laggirnar á sínum tíma. Mjög margir nota þessa síðu, ekki síst til að „blogga“ með öðrum sem standa í sömu sporum. Hjúkrunarfræðingarnir sem sjá um aðstoðina hjá reyksímanum sjá einnig um tengsl við fólk sem nýtir sér aðstoð heimasíðunnar.

Á forsíðu reyklaus.is kemur fram að notendur séu nú 2902 að tölu og að 2299 hafi hætt, heildarfjöldi reyklausra daga: 690482. Við þetta hafa sparast 487.154.922 í krónum talið. Þá er ótalinn gríðarlegur ávinningur fyrir heilsuna:

Ef hætt er að reykja þá kemur ávinningurinn fljótt í ljós!

20 mín:      Púls og blóðþrýstingur í eðlilegt horf
8 klst.:          Líkur á kransæðastíflu minnka
24 klst.:        Lungun byrja að losa sig við slím
48 klst.:        Nikótínið horfið úr líkamanum
72 klst.:        Meiri orka
2-12 vikur:   Betra blóðflæði
3-9 mán.:      Lungnastafsemi batnar um 5-10%
5 ár:              Líkur á kransæðastíflu minnka um helming.

Hér á vefsíðunni er listi þar sem fram kemur hvar hægt sé að leita sér aðstoðar við að hætta.

Kostnaðurinn

Ef sígarettupakki kostar um kr. 830 og reyktur er pakki á dag þá kostar vikan um 5.800 kr. og árið um 303.000 kr. Það er hægt að gera margt betra við þessa peninga.

Smellið á reiknivélina til að reikna kostnaðMeð gagnvirku „reiknivélinni“ getur hver og einn reiknað þennan kostnað fyrir sjálfan sig.

 

Góðir hlutir gerast hægt

Flestir sem reykja hafa gert það lengi og hafa kannski oft reynt að hætta - en að breyta hegðun gerist ekki á svipstundu. Í Hollráðum um heilsuna, sem birtust í Morgunblaðinu í dag, er fjallað um þau þrep sem stigin eru til að breyting verði á hegðun - hvort sem um er að ræða að hætta að reykja eða eitthvað annað. Þar er m.a. rætt um að þetta tekur sinn tíma og að þótt fólk hrasi á leið sinni til tóbaksleysis þá sé bara að standa upp og reyna að hætta aftur.


Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica