Heilbrigðisstarfsfólk eflist í tóbaksmeðferð
Meirihluti reykingamanna vill hætta tóbaksnotkun og líkurnar á að það takist tvöfaldast hjá þeim sem leita sér aðstoðar og ráðgjöf. Hverjum og einum er þá veitt sú aðstoð sem best hentar hans aðstæðum. Heilsufarslegi ávinningurinn, sem hlýst af því að kveðja tóbakið, er auðvitað það sem vegur þyngst en fjárhagslegi bagginn sem fylgir reykingum er líka mikill. Fyrir reykingamanninn er beinn kostnaður um 220.000 þúsund krónur á ári; einn pakka af sígarettum á dag (miðað við að pakkinn kosti 600 kr.).
Bæta þarf tóbaksmeðferð
Myndin hér á síðunni sýnir að í samanburði við aðrar þjóðir stöndum við okkur vel í tóbaksvörnum nema í að veita fólki aðstoð við að hætta að reykja (reykleysismeðferð).
Námskeið fyrir fagfólk
Hlutverk heilbrigðisstarfsmanna í tóbaksvörnum er afar mikilvægt því þeir hafa ýmis tækifæri til að hafa þar áhrif. Heilbrigðisstofnanir ætla nú að efla starfsemi sína í tóbaksvörnum og liður þar í er fræða starfsfólk um árangursríkar aðferðir. Lýðheilsustöð í samstarfi við Landspítalann, Félag íslenskra lungnalækna, Félag heimilislækna, Félag hjúkrunarfræðinga, Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga og Tannlæknafélag Íslands stendur fyrir námskeiði í tóbaksvörnum fyrir heilbrigðisstarfsfólk dagana 13. og 14. nóvember. Skráning fer fram hjá Endurmenntun.

