Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Landsmenn reykja minna en í fyrra

- og konur minna en karlar

21.10.2008

Nýjustu tölur yfir umfang reykinga á Íslandi sýna að dregið hefur úr reykingum á síðustu árum. Lýðheilsustöð fær Capacent-Gallup til að kanna reykingavenjur landsmanna og sýna niðurstöðurnar fyrir árið 2008 að tíðni daglegra reykinga fullorðinna (15-89 ára) hefur lækkað úr 19,0% árið 2007 í 17,6% nú í ár. Þarna munar mest um að færri konur reykja.

Niðurstöðurnar eru samantekt þriggja kannana sem unnar voru á tímabilinu mars til september 2008. Markmiðið með könnunum er að skoða umfang reykinga landsmanna og þróun frá fyrri mælingum. (Niðurstöður fyrri ára er hægt á sjá hér á vefsíðu Lýðheilsustöðvar).

Niðurstöður kannananna 2008 sýna að:

20,1% karla og 15,0% kvenna reykja daglega á Íslandi.

Reykingar íslenskra karla, 2008Reykingar_kvenna_2008þróun reykinga, karlar og konur

Þegar þróunin er skoðuð eftir kyni sést að þegar árið 2002 voru komnar fram vísbendingar um að byrjað væri að draga í sundur á milli kynjanna. Nú í ár er marktækur munur á tíðni reykinga karla og kvenna; 15% kvenna á Íslandi reykja daglega og 20% karla.

Athyglisvert er að í öllum aldurshópum reykja konur minna en karlar.

þróun reykinga, Íslendingar

Þegar til lengri tíma er litið sést að jafnt og þétt hefur dregið hefur úr daglegum reykingum Íslendinga. Þannig reyktu 30% Íslendinga daglega árið 1991 og nú - aðeins 17 árum síðar - er tíðni reykinga komin niður í 17.6%.

Rannsóknir sýna að tíðni reykinga í 10. bekk grunnskóla minnkar ár frá ári og áhugavert er að á sama tíma eru sífellt fleiri fullorðnir Íslendingar taka þá ákvörðun að hætta að reykja. Bæði eru nú fleiri sem eru nýlega hættir (minna en eitt ár síðan) og hættir fyrir meira en ári síðan. Margir þættir gætu hafa stuðlað að þessari þróun síðustu ára. Nefna má sýnileikabann á tóbaki sem vakið hefur athygli víða um heim, almenn heilsuefling hefur verið í íslensku samfélagi auk þess sem fleiri úrræði bjóðast fyrir þá sem vilja hætta að reykja, samanber reyklaus.is og Reyksíminn. Einnig hafa ný, árangursrík lyf til að hætta að reykja komið á markað. Almennt má segja að nú sé auðveldara en áður að hætta að reykja, sé viljinn fyrir hendi.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica