Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Námskeið í tóbaksvörnum fyrir heilbrigðisstarfsfólk

15.10.2008

Lýðheilsustöð í samstarfi við Landspítalann, Félag íslenskra lungnalækna, Félag heimilislækna, Félag hjúkrunarfræðinga, Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga og Tannlæknafélag Íslands stendur fyrir námskeiði í tóbaksvörnum fyrir heilbrigðisstarfsfólk dagana 13. og 14. nóvember.

Námskeiðinu er ætlað að veita heilbrigðisstarfsfólki hagnýta þekkingu og kunnáttu í að aðstoða fólk við að hætta að nota tóbak. Kynntar verða nýjungar í tóbaksvörnum og faraldsfræði tóbaksnotkunar. Farið verður yfir helstu þætti tóbaksvarna meðal annars skaðsemi, ávinninginn af því að hætta að nota tóbak, tóbaksfíkn, reykleysislyf, hegðunarbreytingar og kynnt verðru hugmyndafræði í áhugahvetjandi samtalstækni.

Dagskrá námskeiðs til útprentunar. Smellið á myndina til að stækka og prenta út. Kennarar/fyrirlesarar eru sérfræðingar í læknisfræði, sálfræði og heilbrigðisvísindum. Kennslan samanstendur af fyrirlestrum, umræðum. Markmiðið er að efla heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir tóbaksvörnum, eða hefur áhuga á því, þannig að það geti af öryggi og faglegri hæfni hvatt og aðstoðað fólk til að hætta tóbaksnotkun.

Dagskrá

Fimmtudagurinn 13. nóvember kl.10:00-17:00 í Neskirkju

Námskeið sett: Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar

Tóbaksfíknin: Þorsteinn Blöndal, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, HÍ

Fráhvarfseinkennin: Þorsteinn Blöndal, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, HÍ

Skaðsemin: Hans Jakob Beck, yfirlæknir lungnasviðs á Reykjalundi

Reykleysislyf: Sigurður Þór Sigurðsson, sérfræðingur í lyflækningum og lungnasjúkdómum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Reykleysismeðferðir: Guðrún Árný Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Reyksímans og Kristján Guðmundsson, yfirlæknir, Glæsibæ. Samantekt á þeim úrræðum sem nú eru í boði, t.d. Reyksími og Reyklaus.is

Áhrif tóbaksnotkunar á vefi í munnholi: Sigurjón Arnlaugsson, lektor við Tannlæknadeild HÍ

Föstudagurinn 14. nóvember kl. 9:00-16:00 Endurmenntun HÍ

Hegðunarbreytingarnar: Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð

Hagnýtar sálfræðikenningar/módel þegar unnið er með lífsstílsbreytingar og fíkn með áherslu á reykbindindi: Ásgeir Helgason, dósent í sálfræði

Samtalstækni – hagnýt hugmyndafræði: Sveinbjörn Kristjánsson og Héðinn S. Björnsson verkefnastjórar hjá Lýðheilsustöð

Námskeiðið kostar 33.900 kr. en nánari upplýsingar og skráning hjá Endurmenntun eða í síma 525 4444.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica