Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Vinningshafi evrópsku reykleysisverðlaunanna ,,Reyklaus 2008“

19.8.2008

Valinn hefur verið vinningshafi verðlaunasamkeppninnar „Reyklaus 2008“ sem Reyksíminn og Lýðheilsustöð stóðu að.

Óskað var eftir góðri sögu frá þeim sem væru tilbúnir að hætta að reykja eða væru þegar hættir, sem gæti verið hvatning fyrir aðra í baráttunni gegn tóbaki og til að vekja athygli á úrræðum til hjálpar eins og reyksímanum og reyklaus.is. Vinningshafinn er Rut Sigurðardóttir.

Verðlaunasamkeppnin er hluti af European Smoke Free Awards 2008 sem Evrópuráð reyksíma stendur að. Aðalverðlaun fyrir vinningshafann á Íslandi eru ferð til Amsterdam, á evrópsku verðlaunaafhendinguna, ásamt 100.000 krónum í gjaldeyri. Í tengslum við sömu keppni hafði þremur mönnum áður verið veitt viðurkenning fyrir störf sín í þágu tóbaksvarna. Lesa fréttina.

Rúmlega 450 reynslusögur bárust og af þeim komust 36 í úrslit. Eftir skemmtilega og fróðlega lesningu komst dómnefndin að þeirri niðurstöðu sex sögur væru áhrifamestar en þar væri saga Rutar Sigurðardóttar sú sem ætti verðlaunin skilin. Rut verður því fulltrúi Íslendinga í hópi 11 vinningshafa í evrópska verkefninu Smokefree Award 2008 í Amsterdam. Þar á hún einnig möguleika á að vinna ferðaávísun að andvirði 15.000 evra.

Í dómnefndinni áttu sæti tveir frá Lýðheilsustöð, tveir frá Reyksímanum og einn óháður aðili.
Öllum þátttakendum hefur verið þakkað fyrir þeirra framlag en í keppnina bárust margar mjög góðar og ólíkar reynslusögur frá öllum aldurshópum. Í sögunum koma fram mjög mismunandi ástæður þess að fólk hætti að reykja og þótti bæði ánægjulegt og gagnlegt að lesa um ólíkar upplifanir fólks og sigra þess á tóbaksfíkninni. Saga Rutar er birt hér í heild sinni en birt eru brot úr sögum nokkurra annarra.

„Allt fyrir ástina“

Brot úr vinningssögu Rutar: Rut_Sigurdardottir_2008

Upphafið af því að ég hætti að reykja var að ég hitti yndislegasta mann á jarðríki, varð yfir mig ástfangin og ákvað að eyða ævi minni með öðrum einstakling. Hann reykti ekki og einhvernveginn truflaði það mig alltaf að reykja í kringum hann. Tala nú ekki um að smella á hann kossi eftir að hafa reykt, ég fann að honum fannst það ekkert voðalega huggulegt, þó svo að hann segði aldrei neitt. [...]

Svo kom að því að tækifærið til að hætta fyrir fullt og allt kom. Ég fékk að vita það að ég væri á leið í hálskirtlatöku og ég sá það nú að ekki gæti ég reykt í nokkurn tíma eftir þá aðgerð. Ég ákvað því að ég myndi hætta að reykja eftir aðgerðina.

Smelltu hér til að lesa alla söguna

Viðtal við Rut birtist í Vikunni sem kom út 28.08.08.

Rut Sigurðardóttir

Tilvitnanir í reynslusögur

Hætti bara aftur

Ég get gefið eitt ráð og það er að gefast aldrei upp. Bara hætta. Og ef það heppnast ekki í það skiptið þá hætta bara aftur.“ 32 ára karlmaður, hætti í ágúst 2006.

Ég er frjáls!

„Allt mitt líf breyttist, ég er frjáls!“ 64 ára kona, hætti í september 2000

Ældi af reykingahósta

„Ég var farinn að hósta það mikið á morgnana að það lá við að ég ældi af áreynslu. Einnig fannst mér auglýsingin þar sem konan fór út að reykja í allra veðra víti skondin, því ég og mínir vinnufélagar lögðumst einnig svona lágt.“ 46 ára karlamaður, hætti í febrúar 2008.

Velmenntuð í strætóskýlinu

„Ég er ekki búin að vera í 3ja ára háskólanámi til að hanga útí strætóskýli í nýju fínu vinnunni.“ 29 ára kona, hætti í janúar 2008.

Vildi ekki teljast sóði

 „Það er dagleg tilfinning um að vera „sóði“ sem fær mig til að hætta. Það er slæmt tilfinning. Mér líkar ekki að vera „sóði“.“ 56 ára karlmaður, hætti í febrúar 2008.

Allur tíminn nýtist núna

„Tíminn sem fór í þetta að læða sér burt hér og þar og soga í sig eitrið með þeirri gervitilfinningu að þetta hafi virkilega verið svo gott, hann hefur nýst mann til gagnlegri verka. “ 35 ára kona, hætti í maí 2000.

Ekki að ,,reyna” að hætta

 „[Þ]etta er í fyrsta skipti sem ég hætti að reykja og segi ekki við sjálfan mig að ég sé að „reyna“ að hætta. Ég er hætt!!!!!“ 38 ára kona, hætti í janúar 2008.

Lausnin kom rétt fyrir jól

„Ekki gat ég komið með sama áramótaheit [og árið áður] vitandi það að ég hafði  þrátt fyrir allt ekki reynt í alvöru. Lausnin kom rétt fyrir jól. Á Þorláksmessu reykti ég mína síðustu sígarettu, sagði engum frá því, og hélt það út til áramóta. Þá sagði ég fjölskyldunni frá þessu og tilkynnti jafnframt áramótaheitið: „Ég ætla ekki að byrja að reykja á árinu 2008.“ 59 ára karlmaður, hætti í desember 2007.

Ilma vel og er ekki eins þunn

 „Ég er ekki illa lyktandi. Ég verð ekki nærri því eins þunn eftir að drekka kvöldið áður.“ 21 árs kona, hætti í ágúst 2006.

Reykingar gerðu mig ekki vinsælli

Ég var alltaf mesti lúserinn í bekknum og hélt að krakkarnir myndu fara að fíla mig ef ég byrjaði að reykja, en ég varð bara ennþá óvinsælli. Þegar ég var yngri reykti ég til að sýna öðrum hvað ég væri cool. [...] Það er ekki langt síðan að það rann upp fyrir mér að þetta væri ekki cool og var það aldrei.“ 17 ára karlamaður, hætti í febrúar 2008.

Vinkona mín bað mig um að hætta

 „Ég hætti að reykja vegna þess að vinkona mín sem var með krabbamein á lokastigi bað mig um að hætta að reykja.“ 61 árs kona, hætti  í apríl 1994.

Allt snérist um stað til að reykja

 „Ég var komin með leið á því að allur tími snérist um að finna sér stað til að fá mér að reykja.“ 35 ára kona, hætti í janúar 2008.

Hringdi í reyksímann í hvert sinn

 „Næsta dag ákvað ég strax að segja öllum að þetta væri ekkert mál og þannig fyllti ég hugann af jákvæðum hugsunum og svo hringdi ég í reyksímann í hvert sinn sem mig langaði í sígarettu og bað þau um að segja mér allt það góða sem ég væri að gera fyrir líkamann svo ég gæti fyllst enn meiri eldmóð í baráttunni.“ 31 árs kona, hætti í janúar 2006.


Dómnefndin

 Domnefndin_evropsku_reykleysisverdlaun_2008frá vinstri til hægri:
Bára Sigurjónsdóttir, Dagbjört Bjarnadóttir, Guðrún Árný Guðmundsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Viðar Jensson

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica